Ertu semsagt að fara að vera úti í 3 mánuði? Veit að ég myndi alveg vilja láta “reyna á það” ef mér þætti eitthvað varið í stelpuna af alvöru. Annars held ég að bara gott samtal sé lykillinn, eins og svo oft áður í svona málum. Talaðu við hana, segðu henni hvernig þér líður, reyndu að fá að heyra hjá henni hvort hún sé eitthvað á sömu nótum, og þannig finnið þið lausn. Ættuð bæði að geta gengið sátt frá borði :-) (til að setjast aftur við það eftir 3 mánuði, so to speak)