Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Memnoch
Memnoch Notandi frá fornöld 50 ára karlmaður
492 stig

Stress test fyrir ICSN (13 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sælir. Nú í kvöld verður stress test á fyrstu ICSN serverunum hjá Símnet. Við þurfum að fylla þrjá 10 manna servera á sama tíma og þurfum því ykkar hjálp. Ég vona að sem flestir geti séð sér fært að mæta á serverana í kvöld, best væri ef hægt væri að fylla þá um 21:00. Ip tölurnar á serverana eru þessar: 212.30.198.95:27015 212.30.198.95:27020 212.30.198.95:27025 [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Annað tímabil ICSN deildarinnar. (21 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nú er fyrirkomulag annars tímabils ICSN deildarinnar farið að skýrast. Ákveðið hefur verið að hafa “pre-season” leiki fyrir öll nýju liðin sem verða tveir, og munu hefjast fimmtudaginn 27. næstkomandi. Úrslit þessara tveggja leikja munu ekki gilda á tímabilinu, þetta er aðeins til að tryggja að ný lið mæti í sína leiki. Ef að eitthvert klan skrópar í annan hvorn af þessum leikjum þá þýðir það að það klan verður ekki með í deildinni. Vegna fjölda klana verður þetta tímabil tvískipt í efri og...

[.HaL.] ? (35 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum
Fyrir hönd [.Hate.] og [.Love.] við ég þakka ykkur fyrir góða þáttöku í aprílgabbinu okkar. Því miður virðast vera allt of margir skarpir einstaklingar í CS menningunni hérna heima en ég vona að þið hafið haft jafn gaman að þessu gríni og við. En nú eru þessi frábæru klön [.Hate.] og [.Love.] bæði komin aftur og ég vil aðeins minna á eitt: [.Hate.] Ownar Ykkur Alla :) [.Hate.]Memnoch

Stefnuyfirlýsing [.Hate.] (32 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum
Í kjölfarið á þó nokkrum ásökunum um spillingu og klíkuskap innan [.Hate.] höfum við ákveðið að birta stefnuyfirlýsingu [.Hate.] Taka skal fram að þetta eru okkar lokaorð í þessari umræðu. Stefnuyfirlýsing [.Hate.] Helsta markmið [.Hate.] er að eyðileggja CS menninguna á Íslandi. Við teljum að besta leiðin til þess sé að splundra klönum og koma meðlimum okkar í áhrifastöður þar sem hægt er að stýra öllu [.Hate.] í hag. Við leggjum okkur fram við að lokka til okkar bestu spilarana í öðrum...

PunkBuster ! (7 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég vil biðja ykkur æstu PB notendur um að vera rólegir aðeins og velta fyrir ykkur hvers vegna PB er kominn á alla servera hérna heima. Ég efast ekki um að allir hafi verið orðnir þreyttir á þeirri tortryggni og ásökunum um svindl sem voru orðnar bara sjálfsagður hlutur ef mönnum gekk vel, ég veit alla vegana að það er ein ástæða fyrir því hversu lítið ég er farinn að spila. Síðan PB var settur upp höfum við verið algerlega lausir við allar svindlásakanir og kjaftæði. Óneitanlega er PB ekki...

Credit (4 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það er mjög gaman að sjá hvað margir höfðu gaman af þessu móti og gaman að taka við öllum þökkunum, en það voru fleiri en ég sem sáu um þetta: [.Hate.]Inferis (sá um serverana) [.Hate.]Nazgul og [TVAL]Alli_Iceman (rafmagn) [.Hate.]Dreitill (búnaður frá Tölvudreifingu) [3Gz]IceCool (reddaði húsnæðinu) [.Hate.]Taltos (skipulagning og vinna á mótinu) [.Hate.]PraliX (vefsíðugerð) og allir sem komu að uppröðun/frágangi: [.Hate.]AnyKey [.Hate.]Spaz [3Gz]JohnnyBravo [.Hate.]Abselom [.Hate.]Icez...

Fyrsta CS móti ICSN lokið (57 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þá er fyrsta móti ICSN lokið. Efstu átta sætin enduðu eftirfarandi: 1. [.Hate.] A 2. [.Love.] A 3. [-=NeF=-] A 4. [-IRA-] A 5-6. [DCAP] A 5-6. [DCAP] B 7. [3Gz] A 8. [.Hate.] B Við þökkum öllum sem mættu á mótið og vonum að allir hafi haft gaman að. Sérstaklega viljum við þakka þeim sem hjálpuðu til bæði fyrir og eftir mót. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

ICSN mót 2-4 febrúar. (11 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fyrsta mót ICSN verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands í Mjóddinni. Húsið opnar klukkan 18:00 á föstudaginn og verður opið til klukkan 1:00. Gert er ráð fyrir að hefja keppni í Counter-Strike klukkan 13:00 á laugardaginn. Keppt verður í tveimur 10 liða riðlum þar sem fjögur efstu liðin komast áfram í átta liða útsláttarkeppni en hún verður spiluð á sunnudaginn. Riðlarnir eru eftirfarandi: Riðill A: [DCAP] A [3Gz] B [DCAP] B [.Hate.] A {HoR} [-IRA-] B [-=NeF=-] A [-=NeF=-] B [XpreZ] A...

Varðandi umræðu um reglur í ICSN (28 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mig langar að ræða aðeins þessa umræðu sem hefur komið upp varðandi reglur í ICSN. Lítill hópur manna er búinn að leggja mikla vinnu í bæði deildina og mótin, og eitt af því sem búið er að liggja yfir eru reglunar. Reglurnar eru skýrar varðandi bæði svindl og script (sem ég tel að sé ekki sami hlutur) og þær eru ekki að fara að breytast þrátt fyrir hávær mótmæli þeirra sem ég vil kalla “the vocal minority” Það eru 120 manns að fara að mæta á mótið um helgina og yfir 250 manns skráðir í...

Lið og borð á ICSN mót (11 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nú er komið á hreint hvaða lið verða á mótinu um næstu helgi. Það eru eftirfarandi lið: [3Gz] 2 lið [DCAP] 2 lið [ds] 1 lið [.Hate.] 2 lið {HoR} 1 lið [-IRA-] 2 lið [.Love.] 2 lið [.LSD.] 1 lið [-=NeF=-] 2 lið [TVAL] 1 lið [WizardS] 1 lið [XOR] 1 lið [XpreZ] 2 lið Síðan er einnig að komast á hreint hvaða borð verða spiluð en ekki í hvaða röð, né hver mætir hverjum á hvaða borði, en það mun verða sett upp um leið og það er frágengið. En borðin eru eftirfarandi: cs_estate cs_italy cs_militia...

Seinkun á ICSN deild (24 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Vegna ófyrirsjáanlegra tafa eru ICSN server-arnir ekki komnir upp ennþá. Því er nauðsynlegt að fresta fyrstu umferð fram yfir helgi og verður hún spiluð mánudaginn 29. janúar. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Skráning fyrir ICSN mót. (11 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Skráning fyrir fyrsta mót ICSN sem verður haldið í Mjóddinni fyrstu helgina í febrúar (2-4.feb) verður opnum klukkan 22:00 sunnudaginn 21.janúar. Skáningin er eingöngum opin liðum og komast fyrstu 16 liðin að en önnur verða sett á biðlista. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Fyrsta vika í ICSN! (9 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fyrsta vikan í ICSN er komin upp, endilega hafið samband við mótherja ykkar til að allt gangi vel fyrir sig. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Staða á ICSN (19 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Núna er staðan á ICSN að skýrast. Óneitanlega hafa orðið nokkrar ófyrirsjáanlegar tafir, en nú styttist í að þetta smelli allt í gang. Nokkrar breytingar hafa verið á reglunum, sú stærsta sú að eingöngu verða spiluð de borð því þau henta mun betur í klan mödds. Reglurnar verða uppfærðar í kvöld eða á morgun og þá sést þetta allt betur. En schedule-ið er tilbúið og fer online í kvöld, og ef allt gengur að óskum þá fara server-arnir online á morgun. Þá þurfum við nokkra daga í að testa þá og...

Reglur fyrir ICSN (18 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Nú eru reglurnar fyrir ICSN komnar upp. Eins og er þarf að smella á skráningarlinkinn á www.counter-strike.is en þar eru linkar yfir á skráninguna, skráð lið, reglurnar og einnig er hægt að sækja það þau nýju borð sem verið er að athuga að nota í deildinni. Endilega sækið nýju borðin og skoðið þau vel. Borðin ættu að vera komin upp á Test server [.Hate.] 212.30.198.92:27025. Undirbúningsvinnsla fyrir deildina gengur vel og ætti nú að fara að styttast í að hún hefjist. Búast má við að sjá...

ÍCSN - Íslenska Counter-Strike Netdeildin (17 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Update 2 Nokkur klön hafa bæst við frá síðasta update-i og eru skráð klön nú orðin 18: [3D] [.C4s.] |D| [.DRAKE.] [ds] [-ESF-] [FreeFrags] [GGRN] [.Hate.] [-IRA-] [KWSN] [.Love.] [.LSD.] [-=NeF=-] [Rs] [.Saints.] [TVAL] [VL] Skráningunni verður svo lokað á miðnætti mánudaginn 8. janúar næstkomandi. [.Hate.]Memnoch ICSN admin

Netdeild - update! (27 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þegar þetta er skrifað hafa 13 íslensk CS klön skráð sig til leiks. Það eru eftirfarandi klön: [3D] |D| [ds] [-ESF-] [FreeFrags] [.Hate.] [-IRA-] [KWSN] [.Love.] [-=NeF=-] [Rs] [.Saints.] [VL] Enn eru einhver íslensk klön sem hafa ekki skráð sig og hvetjum við þau til að gera það sem fyrst. Því fleiri klön sem skrá sig, því fleiri leik fá allir út úr þessu, og þar með vonandi meiri skemmtun. [.Hate.]Memnoch

Netdeild og mót á vegum Counter-Strike.is (3 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í tilefni nýs árs kynnir Counter-Strike.is í samvinnu við Íslandssíma og Tölvudreifingu nýja netdeild í Counter-Strike og mót. Netdeildin mun hefjast upp úr miðjum janúar en skráning er nú þegar hafin. Counter-Strike.is kemur til með að bjóða upp á netþjóna til útláns sem einnig verða notaðir í netdeildinni. Endanlegar reglur verða settar upp innan skamms, en við hvetjum öll íslensk klön til þess að taka þátt. Fyrsta mót Counter-Strike.is verður síðan haldið í byrjun febrúar og mun skráning...

Netdeild og mót á vegum Counter-Strike.is (19 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Í tilefni nýs árs kynnir Counter-Strike.is í samvinnu við Íslandssíma og Tölvudreifingu nýja netdeild í Counter-Strike og mót. Netdeildin mun hefjast upp úr miðjum janúar en skráning er nú þegar hafin. Counter-Strike.is kemur til með að bjóða upp á netþjóna til útláns sem einnig verða notaðir í netdeildinni. Endanlegar reglur verða settar upp innan skamms, en við hvetjum öll íslensk klön til þess að taka þátt. Fyrsta mót Counter-Strike.is verður síðan haldið í byrjun febrúar og mun skráning...

Hvar voru [.RaiD.]????? (7 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Við í [.Hate.] ætluðum að taka match við [.RaiD.] í kvöld, en eins og flestir hafa líklega séð þá voru þeir að óska eftir mötchum hérna um daginn! Þeim fannst ekki ástæða til að láta sjá sig, en mér skilst að við séum ekki fyrsta klanið sem þeir svíkja, en það er helv… skítt að láta ekki að minnsta kosti vita ef að liðið kemst ekki!!! Ég held að ef þið haldið þessu áfram þá verði fáir sem nenni að spila við ykkur. [.Hate.]Memnoch

Ný heimasíða Sororicide (7 álit)

í Metall fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hin nýlega endurvaka rokksveit Sororicide hefur nú opnað nýja heimasíðu. Hana er að finna á slóðinni http://www.sororicide.is en fyrir þá sem ekki vita var Sororicide starfandi á árunum 1990-1994 en var endurvakin núna síðastliðið vor. Hljómsveitin er sem stendur í æfingarbúðum og stefnir á tónleikahald með nógu af nýju efni í vetur.

Screenshot (2 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ef einhverjir eiga screenshot úr leikjum gegn [.Hate.] frá því í sumar eða af mótinu sem var í febrúar þá væri mjög gott að fá þau send á memnoch@simnet.is Okkur vantar dálítið af shottum í safnið. [.Hate.]Memnoch

[.Hate.] serverinn fluttur. (0 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Við viljum benda fólki á að [.Hate.] serverinn hefur er kominn á annað port en áður og er núna á 212.30.198.91:27015. Endilega kíkið inn, þessi server er með ný mjög skemmtileg borð, friendly fire ON, chase cam ON og er ekki monitoraður af ifrags, þannig að enginn þarf að vera hræddur um skorið sitt :)

Ný CS borð á [.Hate.] servernum! (1 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nú er búið að uppfæra [.Hate.] serverinn (212.30.198.91:27020) með fimm nýjum CS borðum, cs_alpine, cs_beirut, cs_cairo, cs_deadcalm og cs_siege_apc2. Það er hægt að download-a öllum þessum borðum á [.Hate.] heimasíðunni (http://hate.simnet.is) sem [.Hate.]Map Pack 2. Kíkið endilega á þessi borð og látið sjá ykkur á [.Hate.] servernum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok