Hin nýlega endurvaka rokksveit Sororicide hefur nú opnað nýja heimasíðu. Hana er að finna á slóðinni http://www.sororicide.is en fyrir þá sem ekki vita var Sororicide starfandi á árunum 1990-1994 en var endurvakin núna síðastliðið vor. Hljómsveitin er sem stendur í æfingarbúðum og stefnir á tónleikahald með nógu af nýju efni í vetur.