Mig langar að ræða aðeins þessa umræðu sem hefur komið upp varðandi reglur í ICSN. Lítill hópur manna er búinn að leggja mikla vinnu í bæði deildina og mótin, og eitt af því sem búið er að liggja yfir eru reglunar. Reglurnar eru skýrar varðandi bæði svindl og script (sem ég tel að sé ekki sami hlutur) og þær eru ekki að fara að breytast þrátt fyrir hávær mótmæli þeirra sem ég vil kalla “the vocal minority” Það eru 120 manns að fara að mæta á mótið um helgina og yfir 250 manns skráðir í deildina, en einungis örfáir sem kvarta og kveina hérna á huga. Ég get vel skilið að ekki séu allir sammála um hverja reglu, en ég ætla samt að biðja ykkur að virða það að þetta eru reglurnar í ICSN. Þessi umræða hefur ekkert upp á sig nema að skapa leiðindi. Og varðandi "[.Hate.] einokun" þá langar mig bara að benda á að ef að [.Hate.] menn myndu draga sig út úr þessu, þá yrðu ekkert mjög margir eftir til að vinna þessa vinnu. Ég vona að enginn taki þessu illa, en það erum við sem erum að leggja vinnu og eyða frítíma okkar í ICSN og þetta eru þær reglur sem við teljum bestar. Ég vona að þetta verði til þess að eyða þessari umræðu og menn geti mætt á mótið, haft gaman af og farið eftir þeim reglum sem búið er að setja.

[.Hate.]Memnoch
ICSN admin