Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Medicus
Medicus Notandi síðan fyrir 18 árum, 2 mánuðum 34 ára karlmaður
444 stig

PS2 leikir til sölu (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hér eru 20 PS2 leikir sem ég vil selja. Allir leikirnir eru vel spilanlegir þó sumir séu aðeins meir spilaðir en aðrir. Almennt verð er 1000 KR á leik en á einstaka stað hef ég hækkað eða lækkað. Það að leikur er merktur mikið spilaður merkir það að hann hefur mikið af smáum rispum á sér, en er að öllu leiti spilanlegur. Áugasamir sendið mér einkaskilaboð. Alltaf má ræða magnafslátt. Ef upp koma vandamál með leikinn, eða hann ónýtur á einhvern hátt mun ég leysa það hratt og örugglega....

2008 (17 álit)

í Knattspyrna fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Hvernig leggst komandi ár í ykkur. Þó svo að það sé langt í þetta þá ætla ég að koma með stuttar hugleiðingar um hvert lið Breiðablik - Blikar koma með sterkt lið í deildina að ári að öllum líkindum. Þeir lentu í sama sæti og þeim var spáð og með örlítilli heppni gætu þeir hafa lent aðeins ofar. FH - FH hefur átt góðu gengi að fagna í fyrri umferðum undanfarinna móta en misst dampinn þegar á leið tímabilið. Eftir að hafa misst titilinn til Vals gæti verið að þeir hafi áttað sig á því af...

Til Sölu: 007 Casino Royale (Blu-Ray) (6 álit)

í Leikjatölvur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Eitt stykki Casino Royale á Blu-Ray er til sölu hjá mér. Þetta er útgáfan sem að þú getur keypt úti í búð. Hún er í 1080p upplausn og með íslenskum texta. Selst á 1000 kr. Áhugasamir endilega sendið mér skilaboð. Bætt við 7. maí 2007 - 12:52 (Sendi þetta hingað því PS3 er eini Blu-Ray spilarinn sem ég veit til að er seldur á landinu)

Til Sölu: 007 Casino Royale (Blu-Ray) (6 álit)

í Kvikmyndir fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Eitt stykki Casino Royale á Blu-Ray er til sölu hjá mér. Þetta er útgáfan sem að þú getur keypt úti í búð. Hún er í 1080p upplausn og með íslenskum texta. Selst á 1000 kr. Áhugasamir endilega senda mér skilaboð.

KR sigur! (1 álit)

í Körfubolti fyrir 17 árum
Frir rúmum tveimur klukkustundum voru KR-ingar aðtaka Njarðvík 82-76 í DHL höllinni eftir magnaðan lokasprett. Ekki má gleyma “miðjunni”, stuðningsmönnum KR, sem að voru öskrandi allan leikinn og var 6. og jafnvel 7. maðurinn. Nú er bara að taka þessar suðurnesjamenn á heimavelli þeirra og klára málið í DHL-Höllinni á laugardaginn kemur! ÁFRAM KR!

NFL (20 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hvernig væri að hafa NFL, Amerískan fótbolta, sem áhugamál, eða kannski til að byrja með bara kork inní /fotbolti. Super Bowl er á næsta leyti og auk þess væri gaman að tala um þetta við íslendinga. Bætt við 21. janúar 2007 - 10:56 inná*

Wii Have a Problem.com (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég rakst á þessa fyndnu síðu http://wiihaveaproblem.com. Þar er stuttur listi yfir hvaða hlutir hafa brotnað þegar Wii fjarstýringin hefur flogið úr greipum fólks. Mér fannst þetta nokkuð fyndið. Myndir eru af öllum slysunum! DAMAGE TOLL: Broken Straps: 20 Televisions: 13 People: 4 Broken Controllers: 3 Ceiling Fans: 2 Laptops: 2 Walls: 2 Dishes: 2 Wiis: 2 Stereos: 1 TV Stands: 1 PDAs: 1 Windows: 1

Stýripinnar fyrir Wii (Wiimote) (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Hvenær koma stýripinnar til landsins? Það er hálf ómögulegt að eiga 3 bræður og 1 fjarstýringu :O

Smash my Wii.com (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Fyrir ykkur sem hafa ekki rekist á þesa síðu þá er þetta einhverjir gæar í Kanada sem að fá pening sendan frá alskonar fólki til að kaupa glænýjar leikjatölvur og eyðileggja þær síðan fyrir framan fullt af fólki sem hefur beðið eftir þeim í nokkra daga. www.smashmywii.com (síðan er líka til www.smashmyps3.com o.s.frv.) Mér finnst þetta geggjað fyndið ef ég á að segja eins og er, mér finnst þetta geðveik hugmynd.

Leiðbeiningar (17 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
1. Farðu inná einhverja síðu af eigin vali, helst með mörgum myndum 2. Sláðu inn eftirfarandi þar sem að vefslóðin er (þurkað bara vefslóðina út): javascript:R=0; x1=.1; y1=.05; x2=.25; y2=.24; x3=1.6; y3=.24; x4=300; y4=200; x5=300; y5=200; DI=document.getElementsByTagName(%22img%22); DIL=DI.length; function A(){for(i=0; i-DIL; i++){DIS=DI[ i ].style; DIS.position='absolute'; DIS.left=(Math.sin(R*x1+i*x2+x3)*x4+x5)+%22px%22;...

Skráarnafns ending (6 álit)

í Windows fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég er með skrá sem heitir: Jón og er avi skrá. Það stendur bara Jón en ekki Jón.avi í nafninu. Hvernig fæ ég skráar endinguna aftur?

McDonalds (24 álit)

í Húmor fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Þar sem ég er í vinnunni og hef ekkert að gera þá kem ég með eina McDonalds sögu fyrir ykkur. Nú ég flutti til Belgíu árið 2000 og fannst mér það voða gaman. Eitt það fyrsta sem við gerðum var að fara í verslunarmiðstöðina í hverfinu og fá okkur McDonalds í kvöldmat. Nú ég hafði haft reynslu af ostborgurum héðan af Íslandi og eru þeir með súrsuðum gúrkum og allskyns ósmekklegheitum á borgaranum og ég ákvað að vera gáfaður fyrirfram. Ég gekk að afgreiðsluborðinu og þar sem ég kunni hvorki...

Meisði í FM 2007 (11 álit)

í Manager leikir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Núna hef ég tekið við stórveldi KR í Landsbankadeild á Íslandi. Eitt sem ég hef tekið eftir er það að meiðslin eru mikil. Í 6 síðustu leikjum hafa 9 meiðst auk nokkura annarra á æfingu. Gerist þetta hjá einhverjum öðrum líka? Bætt við 20. október 2006 - 19:10 Sé síðan líka að þegar ég fæ report af öðrum liðum er langur listi af meiðslum viðkomandi liðs, 4-6 menn er ekki óalgeng sjón á þeim lista.

Síðasta umferðin (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Úff, spennandi umferð. Lið uppí 5. sæti gátu fallið í dag. Grindavík féllu í fyrsta skiptið úr Landsbankadeildinni. KR-ingar tóku svaka lokasprett í leik sínum gegn Val og náðu 2. sætinu og er ég sáttur! En ég verð að segja það að mér hefði brugðið ef að ÍA hefði fallið því að þetta er lið sem að á ekki heima í 1. deild. Það kom mér á óvart að sjá Breiðablik taka Keflvíkinga í kennslustund og sömuleiðis að sjá ÍBV taka Fylki. Svo er bara að sjá hvernig HK og Fram spjara sig í...

Magni er komin í úrslit (4 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 17 árum, 7 mánuðum
MAGNI KOMIN Í ÚRSLIT ,,Til hamingju ísland" Til þess að kjósa : símanúmerið 1900 eða 1918 eða á netinu á slóðinni www.rockstar.msn.com. Sms skeytið kostar bara 19 kr. Til þess að nálgast lagalista Rockstar: Supernova og frammistöður Magna þarftu að ýta á Sjá meira. Það er nú gott að Magni er komin í úrslit :)

iPod Nano - Do not Disconnect (14 álit)

í Græjur fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://www.hugi.is/graejur/threads.php?page=view&contentId=2870653#item2870653 Þessi maður er með nákvæmlega sama vandamál og ég, iPodinn kemur ekki upp í iTunes þannig að ég get ekki sett lög inn á hann (held ég), búinn að reinstalla öllu, tölvan sér og “þekkir” ipodinn, en iTunes “finnur” hann ekki, þ.e. hann kemur ekki upp í iTunes eins og gerist með iPod mini sem ég á. Fyrir þá sem nenna ekki að opna þráðinn þá er hann hér: "Ég var að fá iPod nano og ætlaði að koma þessu öllu í gang…en...

Íslensk logo? (2 álit)

í Manager leikir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvar finn ég svoleiðis? Ég er með ágætis facepack en vantar alveg logo.

Evran (9 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvaða myndir vilt þú sjá á evru klinkinu ef að Ísland tæki upp evruna? Ég og Alli komum upp með: € 0.01 - Hallgrímskirkja € 0.02 - Landvættirnar € 0.05 - Húsið hans Alla € 0.10 - Fisk eða veiðistöng € 0.20 - Kringlan eða Smáralind € 0.50 - Vigdís Finnbogadóttir € 1.00 - Davíð Oddsson € 2.00 - Ég og Alli

Magni (9 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Jee, kominn áfram :D

Eitthvað nýtt update komið? (FM 2006) (2 álit)

í Manager leikir fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Heftur eitthvað nýtt uppdate komið í leikmannaskiptum síðan fyrir HM? Jafnvel eftir?

Mynduð þið...? (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ef að þið væruð í einhverjum af þessum liðum sem að hafa verið send niður í Serie B mynduð þið halda áfram að spila með liðinu eða mynduð þið fara? Ég myndi halda áfram.

Hlutdrægir lýsendur (9 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Mér heyrðist það smá á röddu Harðar á sýn í leik Þjóðverja og Ítala að hann hafi haldið aðeins meira með Þýskalandi. En ég rakst á þessa frétt á mbl.is: http://www.mbl.is/mm/sport/bolti/frett.html?nid=1209846 Mér fannst hún ógeðslega fyndin. Hahaha.

RÚV sýnir HM 2010 (9 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 10 mánuðum
http://www.mbl.is/mm/hm2006/frett.html?nid=1209060 Mbl.is RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur fengið sýningarrétt að heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu árið 2010, en keppnin fer fram í Suður-Afríku. Samtök evrópskra sjónvarps- og útvarpsstöðva hafa gert samning um sýningarrétt á keppninni fyrir hönd ýmissa evrópskra sjónvarpsstöðva og var Ísland í hópi þeirra. Að sögn Páls Magnússonar útvarpsstjóra stendur til að nýta þá möguleika sem stafræn tækni býður upp á og sýna keppnina á annarri tíðni líkt og...

Coke = Fail? (33 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Á nýju coke flöskunum sem eru á boðstólnum í Bónus meðal annars stendur “Upplifum Stemninguna”. Þessi stafsetning á orðinu “Stemmning” er til háborinnar skammar en það stendur samt sem áður á öllum 150-200 0,5 l kókflöskunum sem að ég sá þar. Coke = Fail

HM 1994 (12 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Á einhver spólu með upptöku af RÚV með samantekt af öllum leikjum þessara keppni? Ég væri til í að ræða við viðkomandi. P.S. Þetta var geggjuð keppni og Oleg Salenko uppáhalds maðurinn minn í henni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok