Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Black Headed Caique (3 álit)

í Fuglar fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Black Headed Caique eru yndislegir og félagslyndir páfagaukar frá norðanverðri Suður Ameríku. Þeir eru helst þekktir fyrir fimleika og trúðslæti. Þeir hanga á hvolfi, hoppa, velta sér og flauta.Þeir leggjast jafnvel á bakið eins og kettir og kútveltast ef þeir eru spenntir í leik. Þeir hafa mikla hermigáfu. Þeir elska vatn, og verða oft glaðir og spenntir bara við að heyra í rennandi vatni. Ég hvet Beggu til að reyna fyrir sér með þá. Þeir eru skemmtilega sérkennilegir að sjá. Svo eru líka...

Mosi minn! (3 álit)

í Fuglar fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Jæja, ég var að skiptast á skoðunum hér í vor um Mosa minn, sem er rúmlega 1 og 1/2 árs Dísarfugl. Hann átti það til að koma fljúgandi og reyna að bíta, helst í andlitið! Ekki gaman, en mjög blíður þess á milli. Mér var ráðlagt að láta klippa fjaðrirnar hans, sem ég gerði eftir góða umhugsun. Og viti menn, hann er mun skemmtilegri fugl en áður, jafnvel þó hann væri alger dýrðardindill fyrir. Hann er samt sem áður skapmikill fugl sem vill ráða. Og mér var sagt að hann mundi kannski reyna að...

Chicuacua...eitthvað (26 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Sælt veri fólkið. Ég veit ekki einu sinni hvort ég skrifa nafnið á hundategundinni rétt, sem ég eiginlega féll fyrir á dögunum. Þetta eru yndislegir smáhundar.Þessi fyrirspurn mín ætti nú helst heima á korkinum, en ég fann ekki hvar ég ætti að skrifa þar. (o: En sum c, eru margar tegundir af Chicuacua tegundum til? Allar jafn litlar? Eru þær jafn mannelskar og stærri tegundir? Og síðast en ekki síst, hvað kostar hreinræktaður hvolpur? Ég hef aldrei verið fyrir hunda, nema í fjarlægð. Ég hef...

Hann Grámosi minn. (20 álit)

í Fuglar fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég á yndislegan Dísargauk, sem heitir Grámosi, er hefur sem gælunafn Mosi. Hann er mjög sérstakur fugl. Ég er alltaf að reyna að læra betur og betur á hann, því hann hefur sko áveðnar hugmyndir um lífið og tilveruna. Hann kom úr eggi um 1. mars 2002 þannig að hann er rúmlega ársgamall í dag. Hann var ekkert nema blíðan og ljúfmennskan fyrstu mánuðina, en um 6 mánaða (kynþroska? aldurinn fóru að sjást breytingar. Hann gerir sig til við alls kyns tuskur, púða o.s.frv. sem eru mjúkar, þá finnst...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok