Black Headed Caique eru yndislegir og félagslyndir páfagaukar frá norðanverðri Suður Ameríku.
Þeir eru helst þekktir fyrir fimleika og trúðslæti.
Þeir hanga á hvolfi, hoppa, velta sér og flauta.Þeir leggjast jafnvel á bakið eins og kettir og kútveltast ef þeir eru spenntir í leik. Þeir hafa mikla hermigáfu. Þeir elska vatn, og verða oft glaðir og spenntir bara við að heyra í rennandi vatni.
Ég hvet Beggu til að reyna fyrir sér með þá. Þeir eru skemmtilega sérkennilegir að sjá. Svo eru líka til White Headed, en mér finnst þessir fallegri.
Gaman væri að sjá svona fugla hér í framtíðinni.