Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Mikki er týndur (2 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mikki er 2 ára kisa sem kom ekki heim á föstudagskvöldið 9. sept og hans er sárt saknað. Hann er hvítur með svörtum flekkum, með græna ól þar sem heimilisfang og sími er skrifaður inní og eyrnamerktur númerinu 994. Viljið þið vera svo væn og athuga kjallara og geymslur hjá ykkur því okkur grunar að hann hafi leitað skjóls frá rigningunni og núna komist hann ekki út. Upplýsingar í síma 6967979 og 6989781 og að Laugarnesvegi 72 kjallara.

Voigtlander Bessamatic Deluxe (2 álit)

í Ljósmyndun fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég var að eignast Voightlander vél sem er búin að vera í fjölskyldunni í rúm 40 ár og hún er í “mint” ástandi. Hún tekur mjög skýrar myndir en ég get bara notað hana í dagsljósi því það er ekki flass á henni. Veit einhver ykkar um stað eða einhvern sem er að selja flass kit fyrir þessa tegund myndavéla? Ef svo er þá væri frábært að fá sms eða símhringingu… 6967979 Maggý

önnur útgáfa af Fönixreglunni (4 álit)

í Harry Potter fyrir 20 árum, 9 mánuðum
ég fann útgáfu sem ég hélt að væri rétta útgáfan af fönixreglunni á netinu fyrir um 2 mánuðum. Ég las þetta og mikið rétt, bókin var u.þ.b. 800 bls. og það dó t.d einn karakter í henni svo ég hélt að þetta væri alvöru dæmi. Það voru stafsetningavillur og ýmislegt sem gaf til kynna að þetta væri óritskoðað handrit af alvöru bókinni. En svo þá er ég auðvitað búin að kaupa og lesa HP 5 og sé núna að þetta er alls ekki rétt bók en mig langar að vita hvort fleiri gerðu þetta og vita kannski meira...

Bodies vínill (2 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 1 mánuði
ég fann Bodies vínil í safninu mínu og ég veit lítið sem ekkert um þessa hljómsveit. Hver getur frætt mig um þá félaga og sagt mér svo hvort að þessi plata mín sé “raritet” eða ekki? Þess má geta að platan var í plastinu óopnuð þegar ég fann hana og ég hef aðeins rennt henni í gegn einu sinni…………

Flugslys 1948 (5 álit)

í Flug fyrir 21 árum, 1 mánuði
Sælir flugáhugamenn. Ég er að reyna að komast að sem flestu um flugslys sem varð 7. mars 1948. Langafi minn dó í því og ég held að þetta hafi verið eitt af fyrstu flugslysunum á Íslandi þar sem Íslendingar dóu, eða eitthvað svoleiðis. Ég viðurkenni fávisku mína fúslega þegar kemur að þessu máli en mig grunaði að þið vissuð kannski hvar er best að leita eða jafnvel eitthvað um málið. með fyrirfram þökk Maggý

How to host a murder (1 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 2 mánuðum
veit einhver eitthvað um þetta spil? Hvar get ég nálgast upplýsingar um það á netinu? Ég er með þetta í pöntun í NEXUS en getur einhver sagt mér frá sinni reynslu af þessu spili

Óska eftir plötuspilara (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég er að leita mér að plötuspilara, magnara og hátölurum. Þetta má koma allt í sér pörtum eða í formi gömlu góðu heimilisstæðunnar. Ef einhver á þetta til í bílskúrnum eða liggjandi undir skemmdum í geymslunni þá er ég til í að kaupa það af ykkur fyrir smá pening. Endilega hafið samband hérna á huga via skilaboð takk fyri

Leið til að sigrast á martröðum (8 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að lesa grein eftir einhvern sem hafði átt í erfiðleikum með svefn útaf martröðum. Þetta er ein leið sem hefur reynst vel fyrir marga….. Búðu þér til draum sem þig langar að dreyma og vertu skipulögð og skrifaðu niður það sem þú ætlar að láta þig dreyma um. Það má ekki vera neitt í þeim draumi sem hræðir þig. Þetta gæti verið þú og vinur þinn saman í lautarferð eða eitthvað álíka. Þú verður að búa þér til aðstæður sem þú verður ekki hrædd í. Í tilbúna draumnum þínum þá verðuru að...

grip forrit (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 7 mánuðum
veit einhver um link á forrit sem sýnir grip á gítar í formi X02210 eða meira graphic ?????????

hæfileikar óskast (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 8 mánuðum
við erum 2 stelpur sem ætlum okkur að flytja tónlist í framtíðinni. Við erum að leita að hæfileikaríku fólki til að experimenta með tónlist og tónlistartengd listform. Ég held að ég tali fyrir hönd warwik þegar ég segi að við séum mjög opnar fyrir nýjungum og langar til að fara fátroðnar slóðir og gera okkar eigið efni. Þeir sem hafa áhuga og hæfileika geta sent mér msg á huga.is takk

óska eftir að komast í hljómsveit (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 9 mánuðum
mig langar að komast í hljómsveit sem er að gera hluti líka radiohead, sigurrós, air o.s.frv. áhugasamir sendi mér skilaboð á huga

Norskan skógarkött vantar gott heimili (10 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Fyrir um 2 mánuðum þá ættleiddi ég norskan skógarkött að nafni Óðinn Víkingur Stanleys. Það gekk allt vel í fyrstu en núna í seinni tíð þá er heimilislífið ekki alltof gott. Ég tók mér sumarfrí stuttu eftir að kötturinn kom og þá var lífið dans á rósum. Hann er mjög kelinn og við urðum ágætis vinir snemma. En svo þegar ég byrjaði að vinna aftur þá varð hann ekki sáttur. Hann hefur mótmælt mér með því t.d. að skíta á gólfið og þegar ég kem heim úr vinnunni þá lætur hann mig elta sig að...

mig langar að komast í hljómsveit (4 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 9 mánuðum
hæ, ég er 23 ára stelpa sem kann ágætlega við að syngja og ég held að ég geri það bara ágætlega. Ég er að leita að hljómsveit sem er að gera frekar nýstárlega hluti, ekkert BUTTERCUP crap takk! Endilega sendið mér línu og sjáum svo til. Kannski er þetta byrjunin á einhverju frábæru maggy@visir.is

hvert á ég að snúa mér (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 9 mánuðum
ég hef ekki hugmynd hvort að þetta eigi við á hljóðfæri en mig langar samt að spyrja. Er einhver þarna úti sem er að stofna hljómsveit og vantar einhvern til að syngja og elda grátt silfur með sér? sendið mér meil á maggy@visir.is

Nýr link á huga.is (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Mig langar að sjá hverjir eru sammála mér í að það ætti að vera sér topic sem heitir enski boltinn og maður geti svo valið liðið sitt sem valmöguleika sbr. hugi.is/enskiboltinn/chelsea þá er maður að losna við fólk sem hefur ekkert betra að gera en að viðra skoðanir sínar um hversu mikið liðið hins og þessa sökkar vinsamlegast póstið skoðunum ykkar hér. admin…. please ekki setja þetta sem kork, þá fær þetta enga lesningu

Kynning (20 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég ætla að biðja ykkur um að kynna ykkur og ykkar fjölskylduhagi. Það er samt ekki nauðsynlegt að segja til nafns ef ykkur líst illa á það nafn: Maggý aldur: 23 kettir: Legolas (kolsvartur 6 mánaða evrópskur stutthárkisi), Óðinn Víkingur (7 mánaða svartur og hvítur norskur skógarkisi) uppáhalds tilvitnun í sambandi við kisur: Hundar halda að þeir séu menn, kettir vita að þeir eru guðir Þetta er gert til að koma af stað einhverju spjalli þar sem það er ekki mikið að gerast hérna inni. Allir...

Frumraun (5 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Mín hinsta ákvörðun Í dag tók sársaukinn af mér öll völd, því sit ég ein í bílnum, þreytt og köld Ég finn hvernig dauðinn læðist eins og þokulæða, allur heimsins hiti nær ekki frostið innra með mér að bræða. Ég er kalin í gegn og hjartað hægar slær endalok mín færast nær. Ég vona að bráðum birtist maðurinn með ljáinn, segjandi með djúpri röddu sinni “þú ert dáin” Því þá yfirgef ég þetta líf og fer á annað svið, lít aldrei til baka og sný ekki við Ég veit ég hefði getað verið betri vinkona,...

Nýr fjölskyldumeðlimur (4 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Fjölskyldan stækkaði hjá okkur Lego (6 mánaða evrópskur húsköttur) um daginn þegar við ættleiddum 7 mánaða gamlan norskan skógarkött að nafni Óðinn. Ég hef ætlað að skrifa um hann í dágóðan tíma en hef ekki komist í það sökum kattauppeldis :) Fyrstu 3 dagarnir voru annaðhvort eins og að heimsstyrjöld hefði brotist út í Grjótaþorpinu eða tóm helvítis hamingja. Þeir slógust eins og óðir og óhljóðin í þeim voru svo mikil að nágrannarnir héldu að ég væri að toga í rófuna á þeim, klippa klærnar...

spurning til vefstjóra (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
afhverju ertu að taka greinar sem eru í styrrta lagi reyndar og setja þær sem kork þar sem þær fá enga lesningu??? Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þetta gerist. Og by the way þá er Amores Perros lýsingin frá einhverjum vefstjóra röng og mér þykir furða að þið látið svona frá ykkur Ég vænti svars á hrtbeat@hugi.is takk

Amores Perros (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hvert er ykkar álit á þessarri mynd? Persónulega þá finnst mér hún stórkostlegt og þess virði að sitja í 2 1/2 tíma í óþæginlegum sætum Bíóborgarinnar en ég hef heyrt marga segja að hún sé hæg og langdregin. Er það álit þeirra sem vilja frekar Keanu Reeves, hraðskreiða bíla, stór brjóst og byssubardaga eða er þetta raunverulegt álit kvikmyndaáhugamanna?

Gelding (23 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Hvenær er rétti tíminn til að gelda fressketti? Minn er 5 mánaða en þar sem hann er 100% inniköttur þá veit ég ekki hvort að hann er orðinn kynþroska, ég sé aldrei neinar kisugellur reyna að hözzla hann Legó :) Ég held að hann sé ekkert farinn að haga sér öðruvísi en venjulega. Kannski eitt. Ég var að klóra honum á maganum þegar við vorum að horfa á SURVIVOR saman um daginn og hann malaði náttlega eins og herforingi og svo þegar ég leit á köttinn þá var hann kominn með bóner. Ég trylltist úr...

Nýbökuð kisumamma veit ekki meir...... (11 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Mér áskortnaðist lítill svartur kettlingur fyrir um 3 mánuðum síðan og hann er algjör perla, augasteinninn minn jafnvel. Ég hef aldrei átt kött áður svo ég hef ekki hugmynd um hvert ég á að snúa mér í sambandi við þetta vandamál mitt og hans Lego. Hann á það til að sjúga alla þá beru húð sem hann kemst í, hvort sem það er eyrnasnepillinn á einhverjum eða handabak. Hann lygnir aftur augunum og færir svo loppurnar fram og aftur eins og þeir gera víst þegar þeir eru að drekka hjá mömmu sinni....
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok