Hvenær er rétti tíminn til að gelda fressketti?

Minn er 5 mánaða en þar sem hann er 100% inniköttur þá veit ég ekki hvort að hann er orðinn kynþroska, ég sé aldrei neinar kisugellur reyna að hözzla hann Legó :) Ég held að hann sé ekkert farinn að haga sér öðruvísi en venjulega. Kannski eitt. Ég var að klóra honum á maganum þegar við vorum að horfa á SURVIVOR saman um daginn og hann malaði náttlega eins og herforingi og svo þegar ég leit á köttinn þá var hann kominn með bóner. Ég trylltist úr hlátri og hætti að klóra honum og hann leit á mig með þessu ásökunaraugnarráði sem kettir geta einir gefið og fór síðan. Ég veit ekki hvort að þetta sé merki um að honum langi að fá sér að knulle en ég veit að ég mun ekki líta af honum næst þegar ég er að klóra honum á maganum. Hefur einhver hugaður lent í þessu? Ég er farin að halda að ég eigi dáldið skrítinn kött en hann er samt svo yndislegur að ég mundi aldrei skipta honum út fyrir annan eða gefa hann. Mesta rúsína í heimi.