Hundurinn minn er svona ca. jafnstór og Goldeninn, kannski ívið minni, en allavega var ég með hann útá hundasvæði fyrir nokkru og þar mættum við Pomma, og viti menn, Pomminn rauk í hann! Bara slagsmál og læti! Ótrúlegt! Minn vissi ekki betur en að reyna að verja sig en ég var sosem snögg að grípa inní, en þvílíkir töffarar sem Pommarnir eru úfffffff!!