Hvað fékk ég í dag ;) Jæja þetta á eflaust eftir að hneiksla marga hérna.. En eins og flest ykkar vita kanski þá fórum við með Sám til Sóleyjar í klippingu og svona.. Tveir hundar Sóleyjar voru þarna, Pomeranian og Chihuahua. Við mamma auðvitað urðum svo skotnar í þeim. Og vorum að spurja Sóleyju eitthvað útí þessa hunda, hún segir okkur þá að það sé akkurat einn hvolpur, svört tík sem vanti heimili, fólkið sem fékk hana gat því miður ekki verið með hana lengur. Svo við mamma fengum símanúmerið.. og hringdum svo í það í kvöld.. Við máttum fara og skoða hundinn.. og við urðum þetta líka ekkert smá ástfangnar.. Svo nú á ég HUND, alein :)
Hún er gasalega sæt, fædd 8. des 2001 og algjört stuðbolti. Ottó kisan mín er soldið forvitin en heldur sig í ágætisfjarlægð en kemur hægt og rólega nær og nær, Annars er hún búin að vera að hlaupa á eftir honum og Sámi til skiftis :)
Það hafði subbast á hana eitthvað súkkulaði svo við settum hana í smá bað. Svo nú þurfum við bara að hafa Samband við hana Sóleyju og þakka henni fyrir að benda okkur á hana og biðja hana um að snyrta hana aðins :)