Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Guajira
Guajira Notandi frá fornöld Kvenmaður
102 stig
Áhugamál: Kvikmyndir, Bækur, Sagnfræði

Beðið með barneignir (63 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum
Ég var að skoða heimasíðuna hennar Huldu í gær og rakst á setningu sem vakti athygli mína. Á “Mæ Heit List” segist Hulda hata “Fólk sem heldur að maður verði að vera hámentaður og búin að kaupa sér íbúð áður en maður getur eignast barn!”. Ég er 24 ára og er að ljúka BA námi í Háskóla Íslands. Ég er búin að vera með manninum mínum í tæp 5 ár og fyrir þremur árum keyptum við okkur íbúð saman. Samband okkar er mjög gott og okkur skortir ekkert. Samt viljum við bíða með að eignast barn....

Birtíngur (8 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Jæja, loksins tók ég mig til og las Birtíng efitr Voltaire. Mig hefur lengi langað til að lesa þessa bók, en ekki látið verða af því fyrr en nú. Þar sem ég er arfaslök í frönsku las ég bókina á íslensku í þýðingu Halldórs Laxness (það útskýrið í-ið í nafni Birtíngs!). Bókin er örstutt, um 160 blaðsíður í litlu broti í útgáfu HÍB, og því fljótlesin. Í stuttu máli fjallar bókin um sakleysingjann Birtíng og svaðilfarir hans. Hann elst upp í kastala ríks greifa í Þýskalandi, en þegar hann og...

Bókatíðindin komin! (9 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þið getið ekki ímyndað ykkur gleði mína þegar ég kíkti í póstkassann í morgun, Bókatíðindin eru komin!!! Ég las þau af áfergju eins og vanalega. Fullt af spennandi bókum að koma út. Af barnabókun finnst mér bera hæst Páll Vilhjálmsson eftir Guðrúnu Helgadóttur, sem er loksins að koma út aftur. Hún er búin að vera ófáanleg árum saman, snilldar bók. Svo er búið að þýða Skaðræðisskepnur eftir Roald Dahl, einn af mínum uppáhalds höfundum. Ég get ekki sagt að ég sé mikill aðdáandi Vigdísar...

Hvað gerir góða bók góða? (12 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef verið að spá í það hvað gerir góða bók góða og hvað er “góð bók”? Þessum spurningum virðist kannski auðsvarað í fyrstu -söguþráðurinn- en ég held það þurfi meira til. Söguþráðurinn skiptir auðvitað máli, hann bindur verkið saman og heldur manni við lesturinn. Stundum tekur maður upp bók og les hana í einni bunu án þess að geta lagt hana frá sér. Svo eru það aðrar bækur, maður gleypir hvert orð í sig og smjattar á! Og þá kem ég að öðru atriði sem mér finnst þurfa að einkenna góðar...

Oscar Wilde (10 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Oscar Fingal O'Flahertie Wills Wilde fæddist í Dublin 16. október 1854. Hann var vel menntaður og lærði meðal annars í Magdalen College í Oxford. Hann byrjaði snemma að semja og ljóð hans “Ravenna” vann hin virtu Newdigate verðlaun árið 1878. Hann giftist Constance Lloyd 1884 og eignaðist með henni tvo syni. Á næstu árum skrifaði hann sín merkustu verk, m.a. skáldsöguna “The Picture of Dorian Grey”, sem fékk slæma dóma og þótti bera vott um hégómagirnd og kynvillu höfundar. Oscar Wilde er...

Kurt Vonnegut (4 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kurt Vonnegut er bandarískur rithöfundur sem hefur skrifað margar frábærar bækur, þar á meðal Slaughterhouse 5, Hocus Pocus, Breakfast of Champions og The Sirens of Titan. Ég var einmitt að ljúka við að lesa þá síðast nefndu. Hún fjallar um auðkylfinginn Malachi Constant, ríkasta og spilltasta mann á jörðinni. Hann missir aleiguna og gerist hermaður á Mars. Plánetan Tralfamadore kemur fyrir í bókinni, eins og til dæmis í Slaughterhouse 5, en misheppnaði rithöfundurinn Kilgore Trout er fjarri...

George W. Bush tilvitnanir (17 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held við vitum öll að Bandaríkjaforseti er ekki sá snjallasti. Hér fyrir neðan er ljóð sem Richard Thompson á Washington Post setti saman úr tilvitnunum í Gerorge W. Bush. Algjör snilld! Vesalings karlinn að vera MISUNDERESTIMATED!!! Og svo er náttúrulega stóra spurningin: Will the highways of the internet become more few? MAKE THE PIE HIGHER By George W. Bush I think we all agree, the past is over. This is still a dangerous world. It's a world of madness and uncertainty and potential...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok