Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Glowe
Glowe Notandi frá fornöld 148 stig

Ábending ! (0 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mig langar í framhaldi af þessum umræðum um góðar bækur, að benda ykkur á að lesa bók sem heitir Vígslan eftir Elisabeth Haich. Þessi bók snerti mig djúpt og ég fann að ég kannaðist við mörg atriði í þeirri bók, ásamt þvi að finna til samkendar með höfundinum. Látið þessa bók ekki fram hjá ykkur fara. Það er hægt að fá þessa bók á öllum bókasöfnum í landinu. Kveðja Lómi.

Lillibro stendur sig vel. (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 1 mánuði
Það verð ég að segja að Rafl schumaker hefur staðið sig frábærlega í þessum 2 kepnum sem búnar eru nú þegar. Strákurinn gefur bróður sínum ekkert eftir og vildi ég glaður sjá hann segja skilið við viliams og fara yfir til sigurvegarana í Ferrari á næsta keppnistímabili. Ljómi :-)

Hakkinen búinn að vera? (17 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 1 mánuði
Nú þegar tveim keppnum er lokið í formula 1 kappakstrinum, þá verð ég að segja að mér finnst vera svo komið fyrir Hakkinen að hann sé búinn að vera sem ökumaður. Hann hefur oft sýnt snilldartakta, en nú virðist sem því sé lokið. Hann stóð sig illa í tímatökunni fyrir síðustu keppni og byrjaði í fjórða sæti en endaði svo keppnina í því sjötta. Svo er það með þulina sem lýsa keppninni, þeir ættu nú að fara að vinna heimavinnuna sína í staðinn fyrir að vera bulla tóma vitleysu eins og þeir...

Vantar P!! 650Mhz (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
HÆ alles!!! Mig langar að vita hvort einhver hér á til P!! 600 til 650 Mhz örgjörva ( slot 1 ) fyrir lítið eða minna :-) Ef svo er þá má viðkomandi senda mér póst á kelinn@mmedia.is Kveðja Ljómi.

Tómur diskur, Óskrifað blað!!!!!! (0 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef ekki má skrifa á tómann geisladisk, má þá nokkuð afrita skjöl á diskling? Eða skrifa stafi á autt blað? Svona fíflagangur tekur út yfir allan þjófabálk. Og að þingmenn hafi samþykkt þetta er til algerrar skammar ofan á þær skammir sem þeir eru þegar búnir að verða sér úti um með öryrkjamálinu. Kveðja Ljómi.

Hannes hvað?????? (1 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hvað heldur Hannes Hólmsteinn eiginlega að hann sé? Maðurinn kemur á stöð 2 og rífur stólpa kjaft og heldur að hann sé einhver spekingur. Málið er að hann er ekkert málglaður gapuxi sem sér ekkert annað en Davíð Oddsson blindum augum á allt annað. Þarna kemur fíflið og blæs út sínar skoðanir og gefur skít í allt sem heitir röksemdarfærsla. Allt sem ég gat lesið úr hanns málfluttningi var tómt bull. Kveðja Ljómi.<BR

Hipp eða race??? Hvort er betra (0 álit)

í Mótorhjól fyrir 23 árum, 3 mánuðum

Lögin samþykkt!!!!!!! (3 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það gerðist núna rétt í þessu að alþingi samþykkti sem lög frá alþingi, frumvarp vegna almannatrygginga. Hvernig skyldi þá staðan verða hjá þeim sem þegar hafa ekkert nema lágmarksbæturnar? Það er líka spurning hvort öryrkjabandalagið fer ekki með málið til mannréttindanefndar Evrópu í kjölfarið. Nú verður gaman að fylgjast með framhaldinu. Kveðja Ljómi.<BR

Er nauðsinlegt að skjóta þá? (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þetta er það sem kom upp í hugann vegna greinarinnar hér á undann og miðað við þær umsagnir sem fallið hafa frá sumum ónefndum ráðherrum í umræðunni um öryrkja þá datt mér í hug að það gæti þá verið frelsun fyrir ríkissjóð, að fá hingað erlenda sportveiðimenn til að stunda öryrkjaveiðar. Pikka svo út einhvern öryrkja og gefa honum sólarhringsfrest til að fela sig á hálendinu og reyna að forðast að verða skotinn af útlendingi með byssu. Það mætti láta veiðina standa yfir í vikutíma eða svo,...

Lífsstíll eða sport. (8 álit)

í Mótorhjól fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það eru margir sem sameina það að gera mótorhjól að lífsstíl og svo það að stunda það sem sport líka. Það er reynsla margra sem fá bifhjólabakteríuna að byrja á því að fá sér kraftmikið götuhjól og keyra svo eins og vitleysingjar í einhvern tíma. Þegar því tímabili er lokið og maðurinn þroskast, þá er bakterían búin að taka völdin og viðkomandi er til í að gera virkilega breytingu sem felst í því að fá sér chooper og njóta þess að gera þetta að sínum lífsstíl. Stundum á þetta fólk jafnvel...

brennivandamál. (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sælir þið snillingar sem hér framvísið ykkar gáfum. Getur einhver sagt mér og aðstoðað? Mig vantar upplýsingar hvernig ég get brent playstadion diska. var að reyna það en fæ alltaf error þegar hálfnað er verk. Svar óskast sem fyrst Kveðja Ljómi.<BR

Ekki seinna vænna. (0 álit)

í Mótorhjól fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Mikið er ég feginn að það er kominn nýr flokkur hér með þessu skemtilega nafni “Mótorhjól”. Ég á eftir að verða mikið hér og bulla eitthvað skemmtilegt í framtíðinni. Það verður svo skemmtilegt að fylgjast með þegar tenglarnir fara að hrinja inn á síðuna svo að maður getur farið að skoða allt sem tengist hjólum úti í hinum stóra heimi. Kveðja Ljómi.

Báknið sem bilaði. (5 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er mér minnisstætt þegar Pétur H. Blöndal alþingismaður talaði um það í sumar sem leið, að fjárhagsvandræði aldraðra og öryrkja væri vegna óráðssíðu og óreglu. Að fenginni reynslu á því bákni sem tryggingarstofnun, heilbrigðiskerfið og félagsmálaþjónustan eru orðin verð ég að segja að það eru í reynd stjórnvöld sem eru þess valdandi að það fólk sem missir af einhverjum ástæðum heilsuna og þarf að fara í gegnum allar þær læknisskoðanir og tíma hjá sérfræðingum og þar fyrir utan að hafa...

Davíð vill breyta lögum um Hæstarétt (24 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Davíð Oddsson forsætisráðherra lýsti því yfir í útvarpsfréttum í dag, að hann vildi breyta lögum um Hæstarétt í kjölfar dómsins í máli Öryrkjabandalagsins gegn Tryggingastofnun. Davíð sagðist telja fulla ástæðu til að breyta lögum um Hæstarétt og styrkja þau til að koma mætti í veg fyrir “slys” á borð við dóminn í fyrrgreindu máli. Slysið liggur í því, að hans mati, að þrír dómarar af fimm skuli geta kveðið upp dóm sem hefur jafn afdrifaríkar afleiðingar. Hann segist vilja tryggja að...

Einu sinni var það Heil Hitler, Núna er það,,,,,,, (5 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Á fjórða áratug þessarar aldar var það Hitler nokkur sem tók sér alræðisvald í Þýskalandi og allir þegnar landsins voru skyldugir að hilla hann með kveðjunni “Heil Hitler”. Á Íslandi nútímanns er að koma upp svipuð staða, nema hvað það er ekki farið að hilla manninn opinberlega, nema af þeim stuðningsmönnum hanns sem eru greinilega með augnleppa kringum augun til að koma í veg fyrir að utanaðkomandi aðilar trufli ekki sjónlínuna á hinn mikla leiðtoga sem þeir telja Davíð nokkurn Oddson vera....

Til hvers fer fólk á þing??? (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hvers vegna er fólk að fara á þing, ef ekki til að vinna í þágu þess fólks sem kýs það? Er þetta eitthvað eiginhagsmunapot til að hygla sér og sínum eða er þetta einhver fjandans valsasýki? Mér er spurn? Kveðja Ljómi.<BR

Skoðanakönnunin hér fyrir neðan (20 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það verð ég að segja að þessi skoðanakönnun um besta ráðherran í þessari ríkisstjórn hefði mátt vera betur orðuð, þar sem enginn af þessum ráðherrum á skilið að fá stig miðað við hvernig þeir hafa staðið sig í embætti. Og það að sjá að Dabbi skuli vera með flest atkvæðin, sýnir svo ekki verður um villst að fólk er ekki enn farið að fatta hvað maðurinn er falskur og lyginn. Kveðja Ljómi.

Lögbrot og refsingar (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mér datt það í hug þegar ég var að hugsa um dóm hæðstaréttar núna um daginn út af máli öryrkja, að það er misjafn dómur sem afbrotamenn fá á þessu landi eftir því í hvaða þjóðfélagsstöðu þeir eru. Nú er búið að sanna að ríkisstjórnin braut lög sem gerði það að verkum að ríkið “stal” miljónum ef ekki miljörðum af öryrkjum og ellislífeyrisþegum í landinu með því að setja á lög sem stríddu gegn stjórnarskrá lýðveldisins. Því langar mig að spyrja út frá þessari staðreynd hvort ekki sé hægt að...

Einfalt og fljótt!!!!!!! (5 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
HÆ!!!!!!! Það er eitt sem mig langar til að koma að í þessari umræðu. Flash og dreem,,, getur svo sem verið flott að sjá á heimasíðum þar sem það á heima. En að setja upp heimasíður sem eingöngu byggja á þessari tækni eru LEIÐINLEGAR, endurtek, LEIÐINLEGAR. Þær eru lengi að hlaða sig inn og þungar í keyrslu á venjulegum heimilisvélum og ég nenni ekki að eltast við slíkar síður. Farið á http://www.mmedia.is/~kelinn og skoðið þá síðu. Hún er eiföld og þægileg og fljót Kveðja Ljómi.<BR

Hækkun eða lækkun skatta? (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Alltaf skal ríkisstjórnin vera að hreykja sér af því að lækka saktta í landinu þegar þeir setja fram tölur sínar í viðtölum við fjölmiðla. Það er altaf viðkvæðið að þeir séu svo góðir við almenning og séu að lækka beina skatta með hægri hendi meðan þeir hækka skattana með þeirri vinstri og leyna því fyrir almenningi. Sem sagt eintómur feluleikur, fals og plott. Ég sagði við alla sem heyra vildu árið 97 þegar verið var að semja um launahækkannir og ríkið lagði til skattalækkannir sem áttu að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok