Á fjórða áratug þessarar aldar var það Hitler nokkur sem tók sér alræðisvald í Þýskalandi og allir þegnar landsins voru skyldugir að hilla hann með kveðjunni “Heil Hitler”. Á Íslandi nútímanns er að koma upp svipuð staða, nema hvað það er ekki farið að hilla manninn opinberlega, nema af þeim stuðningsmönnum hanns sem eru greinilega með augnleppa kringum augun til að koma í veg fyrir að utanaðkomandi aðilar trufli ekki sjónlínuna á hinn mikla leiðtoga sem þeir telja Davíð nokkurn Oddson vera. Því miður er þetta fólk svo blint í trú sinni á foringjann að það styttist sennilega í það að opinberlega fari það að hilla hann á svipaðan hátt og gert var við Hitler á sínum tíma. Mér finnst vera kominn tími til að þetta aumingja fólk fari að leita sér lækninga við þessum hvimleiða sjúkdómi sem ég kýs að kalla Davíðsheilkenni og sjúkdómseinkennum er lýst í grófum dráttum hér að ofan. Seinna skal ég koma með sjúkdómsstigin og gera betur grein fyrir þeim í öðrum pistli, til að vera ekki með of langt mál hér.

Kveðja Ljómi.