Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

(heitt) (4 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Allt í lagi, kannski er ég bara svona svakalega blind, en ég kíkti á forsíðuna og hérna(tilveruna)og finn enga tilkynningu um þetta. Hvað er þetta sem stendur við hliðina á sumum korkunum, (heitt). Er þetta til þess að sýna hvað er í heitum umræðum eða? Endilega útskýrið.. Og ekki hlæja ef að þetta er svo kannski beint fyrir framan mig, eða jú hlæjiði bara, en ekki framan í mig samt:)

Kettir & Hundar (4 álit)

í Kettir fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Mig langaði að spyrja ykkur hugara að einu. Nú á ég 3 ára Border Collie tík, eða við eigum hana, semsagt fjölskyldan mín. Mig sjálfa langar rosalega í kött. Hundurinn minn er mjög hyper og mamma er hrædd um að húsið yrði bara í rúst þegar hún kæmi heim á daginn. Hafið þið einhverja reynslu af þessu, eigið þið hund og kött og hvernig gengur það?

Vandamál (7 álit)

í Netið fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jæja ég gerði kork hérna um daginn og hef ekki fengið svör, en ég er með annað vandamál sem ég vona að einhver geti hjálpað mér! Ég náði í DCf++ en ég kann EKKERT að setja þetta upp! Er búin að ná í það, finna skjöl til að deila og finna notendanafn en svo man ég ekki meira, það vantar eitthvað til þess að koma þessu í gang. Ef einhver vill vera svo vænn að leiðbeina mér annaðhvort hér eða bara pm þá væri það vel þegið!?:) Fyrirfram þakki

Húðflúr & Götun (26 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Mig langaði að spyrjast fyrir með Húðflúr og Götun, tattoostofuna í Keflavík. Hvort einhver hérna með reynslu eða bara einhver sem hefur heyrt frá einhverjum! Ég hef ekki tíma til þess að fara inn í Reykjavík en mig langar heldur ekki að fá mér tattoo ef þetta eru einhverjir amatörar! Hver sem er með reynslu eða heyrt frá einhverjum með reynslu, hvernig eru þessir flúrarar?

Anyone? (0 álit)

í Netið fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ok ég náði semsagt í dc++ í gær en nú er bara vandamálið að ég man ekkert hvernig maður kemur þessu í gang, ég er búin að share-a og finna notendanafn, þarf bara að finna hub.. Ég bara man ekki hvernig maður gerir þetta? Einhver sem getur hjálpað mér?(A) Bætt við 20. janúar 2007 - 15:47 Spoke too soon! Sá ekki spurningar og svör fyrir neðan mig! Afsakið og reynið að hunsa það! EN ekki korkinn minn samt:)

Bara ef.. (32 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 3 mánuðum
…hlutir væru svona í alvöru hérna á okkar elskaða Íslandi!:) http://b2.is/?sida=tengill&id=212580 Samt alltaf gaman að lesa svona, maður fyllist þjóðarrembingi og ranghugmyndum í smá tíma. Svo lítur maður út og kemur strax aftur niður á jörðina.. Nei nei Ísland best í heimi, ekki satt?

Kjáninn ég.. (3 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ég er farin að halda að ég hafi ekkert sent inn myndina sem ég hélt ég hefði sent inn! Sendi hana inn fyrir svona viku eða meira. Og það er ekki enn búið að samþykkja hana, kannski er svona svakalega biðröð!? Allavega leiðinlegur korkur ég veit, en ég varð bara að koma þessu á framfæri því ég vil ekki senda inn myndina aftur ef hún er svo í bið:P

Skil ekki! (10 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ohh, ég skil þetta ekki? Ef einhver vill vera svo vænn að útskýra fyrir mér hvað á að vera svona fyndið við þetta?! PS. Ég er ekki að tala um Arthur almennt, bara einmitt þennan! http://b2.is/?sida=tengill&id=210888

Hringitónar? (2 álit)

í Farsímar fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Hérna, ég var að fjárfesta í svona síma https://vefverslun.siminn.is/shop.do?pID=10015 Er ekki alveg hægt að hafa svona mp3 hringitóna í honum, ekki hlæja þó að það standi kannski þarna, kann ekkert að lesa útúr þessum tölustöfum þarna:)

Varðandi tölvur.. (8 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Já ég veit að ég ætti að setja þetta á tölvur en ég ætlaði að gera heiðarlega tilraun til þess þangað til að ég sá að seinustu 2 korkum hafði ekki verið svarað og annar þeirra var gerður í gær, og mig vantar svar núna(A) Þannig er nebbla mál með vexti að mig langar til þess að hafa tölvuskjáinn minn alveg hreinan, ekki neitt á honum, engin icon þ.e.a.s., ég fór í control panel og tók allt í burtu nema ég fann ekki hvernig hægt væri að fjarlægja recycle bin:/ Er það kannski ekki hægt? Sá sem...

Mitt fyrsta fyllerí (132 álit)

í Djammið fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Ætli ég hafi ekki verið 15 ára á 16 ári. Man það samt ekki alveg. Þetta byrjaði þannig að ég var svona farin að pæla hvort ég ætti nú ekki að prufa að drekka smá. Þetta heillaði og vinkona mín hringdi svo í mig og tilkynnti mér það að það væri partý hjá vinkonu hennar í Hafnarfirði og spurði hvort mig langaði nú ekki að koma með. Ég ákvað að skella mér. Fór og tilkynnti mömmu það að ég ætlaði á mitt fyrsta fyllerí. Þar sem mamma treysti mér alveg þá leyfði hún mér að fara og mamma vinkonu...

Árið 2006 (55 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Nokkrar spurningar um árið 2006 sem ég fann í DV og langaði að forvitnast með því að spyrja ykkur Hugara:) Og fræða ykkur með mínum svörum í leiðinni:) Hvernig var árið 2006? Það var upp og niður, aðallega niður samt því miður. Hvað fannst þér fyrirsjáanlegast á árinu? Ég að útskrifast úr Hraðbraut Hvað kom mest á óvart? Þegar fyrrverandi kærastinn minn hætti með mér í sept. Hvað breytti lífi þínu á árinu? Hmm, ég er náttla orðinn stúdent núna. Það breytti lífi mínu alveg hrikalega mikið:P...

Deja Vu (10 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Jæja þið sem hafið séð hana hvað fannst ykkur um hana? Persónulega þá fannst mér hún fín, ekkert meira né minna en það. Tony Scott, Jerry Bruckheimer og Denzel Washington. Þetta er svona mynd sem hefur allt sem þarf, fullkomin formúla, en er samt bara fín.. Segiði endilega hvað ykkur finnst:)

Jólalag! (6 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ok, ég heyrði jólalag um daginn í útvarpinu, ég man ekki textann en það voru bæði kona og kall að syngja og lagið virtist geta verið írskt eða sungið af einhverjum írum, hljómaði svona Irish Rovers einhvernveginn:P Ef einhver veit hvað ég er að tala um þá má hann endilega hjálpa mér, þetta er eina jólalagið sem gæti hugsanlega komið mér stuð, er komin með algjört ógeð af jólalögum:P

Afhverju Die Hard?? (11 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ok ég hef verið að rekast á það að fólk segir að Die Hard sé jólamynd? What? Nú hef ég reyndar ekki séð hana en viljiði samt vera svo væn að útskýra það fyrir mér:) Kannski maður leigi sér hana þá yfir jólin?

What to do, what to do? (11 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ohh ok ég hef ætlað að skrifa hérna síðan 18. sept. En þá hætti kærastinn minn til 1 1/2 árs með mér. Ok ég grét og grét og bað hann um að reyna aftur(pathetic I know).. Allavega, ég er ekki að komast yfir hann. Málið er að ég bætti á mig á meðan við vorum saman, ekkert svakalega en ég væri alveg til í að vera eins og ég var fyrir 1 ári síðan. Og sjálfstraustið mitt er ekki upp á sitt besta! Svo ég hef ekkert verið að reyna við neinn annan. Veit ekkert svo sem hvar ég gæti reynt við einhvern...

Húðflúr! (28 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Jæja, nú er ég að spá í að fara að fá mér tattoo.. Það yrði þá mitt fyrsta. Mig langar að fá mér ljón þar sem ég er ljón í stjörnumerki(frumlegt ég veit;)).. En mig langar til þess að hafa það svoldið öðruvísi, ekki krúttlegt því ég er ekki krúttileg.. Helst öskrandi:) ef að þið lumið á einhverro flottri ljónamynd endilega láta mig vita:) Finn ekkert á netinu sem mér líst á!:S

Hvað hét hún? (7 álit)

í Bækur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég las bók í fyrra um unga stelpu sem lenti í miðri borgarstyrjöld þegar Kosovo Albanir vildu fá sjálfstæði frá Serbum. Henni var rænt og nauðgað trekk í trekk. Ég man ekki hvað hún heitir á íslensku en hún heitir Girl of Kosovo á ensku! Ef einhver veit hvað ég er að tala um má hann endilega hjálpa mér?:)

Alveg ráðþrota! (11 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ok, ég er alveg ráðþrota núna! Er búin að leita allstaðar og ég var að velta því fyrir mér hvort að þið kæru hugarar vissuð kannski hvar ég gæti fundið atriðið þar sem krakkarnir eru að syngja “One, two Freddy's coming for you, three, four better lock the door.” Í Nightmare on Elm Street?:) Vantar þetta alveg nauðsynlega en ég er alveg tóm!:/

Veikleiki? (41 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Jæja, ég fór að pæla um daginn, hver er minn veikleiki? Svo ég spyr ykkur hugarar! - Hver er veikleikinn ykkar? - Hverju eru þið háð? Bætt við 17. nóvember 2006 - 19:17 Já kannski gaman að bæta því við að ég get ekki logið, það er minn veikleiki, og ég er háð varasalva!

Mánudagar til mæðu (17 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Jahérna, ég vaknaði í morgun með sól í hjarta og bros á vörum, endurnærð og hress, tilbúin að takast á við komandi viku og það sem verra er mánudaginn:) En ég átti heldur betur eftir að fá það í fésið á mér.. Jæja mæti í vinnuna og allt ljúft þangað til kl verður 2 þá ákveður stráksskratti að skíta á sig.. og ég svo gáfuleg að tékka á skítalyktinni. Ekki nóg með ákveður barni að fá kast með kúkinn í rassinum og sest allstaðar og útum allt og yndislegt.. Ég með sótthreinsandi að þrífa allt...

Jólamyndir? (17 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ok, kannski smá snemma að vera að spyrja um svona, en viti þið hugarar um einhverja skemmtilega jólamynd? Svona svipaða og Christmas Vacation? Fyndin og kemur manni í jólaskapið?' Allar hugmyndir vel þegnar:)

Dc++ (5 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Nú veit ég ekki alveg hvar ég á að setja svona spurningu eða hvort ég megi það yfirhöfuð en er dc++ ennþá virkt og ef svo hvernig getur maður komist inná það? Er það eins og torrent að maður þarf að þekkja vin sem þekkir mann sem þekkir frænda þess sem er inná því?

Nothing hurts like love (4 álit)

í Rómantík fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Broken hearts, broken dreams, There just some things love brings When you learn that its all the lie you cry You find out Nothing, Nothing, Nothing Hurts like love Nothing brings your heart so much pain Broken hearts, broken dreams There just some things love brings When you learn that its all the lie you cry You find out Nothing, Nothing, Nothing Hurts like love Nothing brings your heart so much pain Broken hearts, broken dreams There just some things love brings When you learn that its all...

H&M (24 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Er H&M ekki lengur til á Íslandi? Ef svo, ekki vill svo vel til að þið vitið hvert það flutti?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok