Jahérna, ég vaknaði í morgun með sól í hjarta og bros á vörum, endurnærð og hress, tilbúin að takast á við komandi viku og það sem verra er mánudaginn:)

En ég átti heldur betur eftir að fá það í fésið á mér.. Jæja mæti í vinnuna og allt ljúft þangað til kl verður 2 þá ákveður stráksskratti að skíta á sig.. og ég svo gáfuleg að tékka á skítalyktinni. Ekki nóg með ákveður barni að fá kast með kúkinn í rassinum og sest allstaðar og útum allt og yndislegt.. Ég með sótthreinsandi að þrífa allt baðherbergið.

Svo kl 3 þarf ég að fara úr vinnu til að fara til læknis útaf sinaskeiðabólgunni. Ég býst við að fá kannski íbúfen og ráð um að hvíla hendina.. En nei ég held nú síður, labba út með gifs!! Eins og ég sé handleggsbrotin.. Þannig að það tekur mig korter lengur að skrifa þetta blogg heldur en vanalega.. Yndislegt

Kl 4 hringir svo kona í mig frá Sumarferðum. Ég svara alveg grunlaus um hvað er að fara að skella á mér.. ég skal bara gefa ykkur samtalið..

Ég: Halló
Hún: Já góðan daginn, ******?
Ég: Já
Hún: Já þetta er **** frá sumarferðum, það varð smá óhapp þegar þú fórst til Tenerife nú fyrr á árinu og þeir eru ennþá að rukka okkur..
Ég: (helvítis tíkarsynir) Já er það..
Hún: Já
Ég: Ok
Hún: Já, ég er bara með þitt nr. Getur þú haft samband við ***** og *****
Ég: Nei eiginlega ekki
Hún: Nú?
Ég: Já
Hún: Nú nú eitthvað ósætti
Ég: Nei
Hún: Ok, en ertu með nr þeirra
Ég: Já
Hún: Ok, þetta er svona 5000 kall. Þeir eru ennþá að tala um þetta og ég bara steingleymdi þessu
Ég: Já ég líka (andskotans asnar)
Hún: Já hvað er nr hjá *****?
Ég: Blabla
Hún: Jæja allt í lagi, þakka þér fyrir, ég verð svo bara í sambandi við þig.
Ég: Já vertu blessuð

!!!!!!

Svo þegar ég kem heim er ekkert til að borða og ég ekkert búin að borða síðan í morgun því það voru fiskibollur sem litu út eins og kleinur í leikskólanum!!!

Hata mánudaga!

Bætt við 13. nóvember 2006 - 17:51
Átti að sjálfsögðu ekki að standa blogg þarna;) Var bara að Copy/paste-a!