Já ég veit að ég ætti að setja þetta á tölvur en ég ætlaði að gera heiðarlega tilraun til þess þangað til að ég sá að seinustu 2 korkum hafði ekki verið svarað og annar þeirra var gerður í gær, og mig vantar svar núna(A)

Þannig er nebbla mál með vexti að mig langar til þess að hafa tölvuskjáinn minn alveg hreinan, ekki neitt á honum, engin icon þ.e.a.s., ég fór í control panel og tók allt í burtu nema ég fann ekki hvernig hægt væri að fjarlægja recycle bin:/ Er það kannski ekki hægt?

Sá sem er ofurfróður um svona mál má endilega hjálpa mér og kannski segja mer í leiðinni hvar maður getur breytt um theme á tölvunni sinni, og þá er ég ekki að tala um þessi venjulegu, heldur kannski eitthvað sem er hægt að dl?

Jæja fyrirfram þakkir, veit að þetta er svolítið mikið(A)