Ætli ég hafi ekki verið 15 ára á 16 ári. Man það samt ekki alveg.

Þetta byrjaði þannig að ég var svona farin að pæla hvort ég ætti nú ekki að prufa að drekka smá. Þetta heillaði og vinkona mín hringdi svo í mig og tilkynnti mér það að það væri partý hjá vinkonu hennar í Hafnarfirði og spurði hvort mig langaði nú ekki að koma með. Ég ákvað að skella mér. Fór og tilkynnti mömmu það að ég ætlaði á mitt fyrsta fyllerí. Þar sem mamma treysti mér alveg þá leyfði hún mér að fara og mamma vinkonu minnar reddaði okkur í ríkinu.

Ég hélt semsagt til Hafnarfjarðar með rútu(bý í Reykjanesbæ)með 6 breezera og vodkaflösku!

Þegar við komum á staðinn byrja ég strax að hella í mig. Drekk 3 breezera á no time, stend svo upp og dett aftur niður. Þá er ég farin að finna verulega á mér. Klára svo hina 3 og dett aftur. Vinkona mín biður mig að standa upp og ég öskra á hana á móti að ég sé standandi, hvaða vitleysa þetta sé í henni. Hún gefst upp á mér og fer upp á klósettið. Þá ákveð ég að standa upp, fer inní eldhús þar sem eitthvað fullt fólk er með betty crocker súkkulaðikrem að smyrja á sig á fullu. Allir að sleikja súkkulaði af löppunum og brjóstunum á hvort öðru. Mér líst nú ekkert á blikuna þannig að ég labba upp stigann(veit samt ekki hvernig mér tókst það)fer inn á klósett til vinkonu minnar þar sem einhver strákur er í sturtu útaf kreminu. Dett á baðkarið og rotast næstum, ligg þar bara og læt vinkonu mína hugsa um mig. Nenni því svo ekki lengur, renni mér niður stigann og fer og fæ mér vodka, að lokum er ég orðin það ölvuð að vinkona mín ákveður að fara bara. Við fáum að gista hjá einhverjum gaur, en það vill nú ekki betur til en það að ég æli í bílinn hans(A)

Hann var ekki ánægður en við fáum samt að gista. Ég man ekki mikið eftir restinni en ég gleymi því aldrei þegar ég vakna á gólfinu hjá einhverjum gaur í kópavogi með tærnar hans í nefinu á mér og foreldra hans í næsta herbergi. Eg vissi ekkert hvar ég var stödd því ég mundi ekki eftir að hafa farið heim til hans, vek vinkonu mína frekar hrædd og gaurinn skutlar okkur svo útá rútustöð.

Mér hefur aldrei liðið jafn illa og þarna, öll marin og blá með RISA kúlu á hausnum og súkkulaði útum allt. Ég mundi ekki neitt og þurfti að biðja vinkonu mína að hjálpa mér að rifja þetta upp.

Ég hef aldrei orðið jafn full og ég varð einmitt þarna. En þetta var samt svakalega skemmtilegt, það sem ég man af þessu:)