Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Atli74
Atli74 Notandi frá fornöld 72 stig

Sálfarir, þjálfun (4 álit)

í Dulspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Sæl verið þið Mig langar gjarnan að vita hvernig best er að þjálfa með sér hæfileikann til að fara sálförum, þ.e.a.s. fara “út úr líkamanum”. Er þetta gert í gegnum hugleiðslu? Hvað segið þið sem hafið þennan hæfileika? Kv., A.

Kickbox/thaibox/muyi Thai (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég er alveg úti að aka í þessum kickbox-heimi. Nú las ég hér nýlega frásögn drengs sem heimsótti Vos Gym í Hollandi og hafði af gagn og nokkurt gaman eftir frásögninni að dæma. Segið mér nú, kickbox-gaurar, er kickbox og thai box sama fyrirbærið? En muyi thai? Hver eru helstu tæknileg einkenni kickbox og hve mikið líkist það t.d. karate eða TKD? Þá fýsir mig einnig að vita hvernig gráðunarkerfi er notað í kickboxi. Og svariði nú.

Byrjendanámskeið Þórshamars (0 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja, elskurnar, gleðilegt ár og takk fyrir lifandi skoðanaskipti á því sem var að líða. Á morgun, fimmtudaginn 9. janúar, hefjast byrjendanámskeið hjá Karatefélaginu Þórshamri, Brautarholti 22. Námskeið fyrir fullorðna (15 ára og eldri) hefst kl. 20:00 og verður kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:00 og á laugardögum kl. 14:00. Gjald fyrir byrjendanámskeið er 12.000 krónur og lýkur því með gráðun í apríl. Fyrsti tíminn er þó ókeypis. Byrjendanámskeið unglinga (10 - 14 ára) hefst kl....

Karatefólk ársins (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Jón Ingi Þorvaldsson hefur verið valinn karatemaður ársins og Edda L. Blöndal karatekona ársins. Jón Ingi á eftirtalin afrek á árinu: Bikarmeistari KAÍ, Íslandsmeistari í -80 kg. flokki í kumite, 3. sæti í -80 kg. flokki í kumite á Bohemian Open í Tékklandi, 16 manna úrslit (3. umferð) í -75 kg. flokki í kumite á HM í karate í Madrid. Edda á eftirtalin afrek á árinu: Íslandsmeistari í kata, Íslandsmeistari í hópkata, Íslandsmeistari í opnum flokki kvenna í kumite, Íslandsmeistari í +57kg....

Hvað eruð þið gamlir/gömul? (10 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, komið þið með það.

Sólveig tekur á Japönum (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sólveig Sigurðardóttir, félagi í Karatefélaginu Þórshamri, dvelur núna sem skiptinemi í Japan, í borginni Sendai sem er í Tohoku í norðurhluta Japans. Sólveig er karatekona ársins 2001, núverandi bikarmeistari kvenna í karate og margfaldur unglingameistari í kumite og kata. Um síðustu helgi tók hún þátt í fylkismóti fyrir shotokan karate en Sólveig keppir í flokki unglinga 15 - 17 ára. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði í báðum flokkum sínum, í kata og kumite. Í kumite keppti hún þrjá...

Belti (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Fást belti annars staðar en í Útilífi, veit einhver það? Mig vantar 300 cm brúnt belti en þeir eiga bara 280, týpískt.

Edda og Jón Ingi fengu brons á Opna tékkneska (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Edda Lúvísa Blöndal og Jón Ingi Þorvaldsson frá Karatefélaginu Þórshamri fengu bæði brons í sínum þyngdarflokki á Opna tékkneska mótinu um helgina. Mótið er liður í undirbúningi fyrir HM á Spáni helgina 16. - 17. nóvember. Þórshamar óskar þeim til hamingju með þennan glæsilega árangur. Af heimasíðu Þórshamars, www.thorshamar.is.

Umræður dauðans (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
…eða dauðar umræður alla vega. Hvernig er það, hefur ekki nokkur maður neitt að segja hér lengur?? Menn rifust hér með kjafti og klóm fyrir nokkrum mánuðum. Eru menn almennt að hamast í sínum sjálfsvarnar/bardagaíþróttum yfir sumarmánuðina? Hvernig gengur það? Hvert er hlutfall þeirra sem æfa á sumrin af heildarhópnum? Hvort finnst ykkur betra að æfa á sumrin eða veturna? Farið þið í gráðun í haust? Hvernig gengur ykkur í lífinu….? Svona nú, líflegar umræður í gang. Án frekari tafa. Da5id

Logið um gráður - er það cool? (31 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 11 mánuðum
OK, það er svo sem hundleiðinlegt að vera að koma af stað einhverri neikvæðri umræðu innan greinarinnar en ég verð að heyra aðeins frá ykkur um þetta. Hann Jimmy vinur okkar í Dugguvoginum hefur nú gjarnan verið á milli tannanna á fólki hér og annars staðar og ég veit að þið sem æfið hjá honum verjið hann með kjafti og klóm sem er auðvitað bara eðlilegt. En maðurinn er ekki með helminginn af þeim gráðum sem hann segist vera með, ég held að það viti það allir þótt sumir vilji loka augunum...

Shotokan Planet (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sælir piltar og stúlkur Nýi tengillinn undir erlendar upplýsingasíður, Shotokan Planet, er frá mér. Mig langar að vekja sérstaka athygli á þessari síðu fyrir þau ykkar sem eru áhugamenn um (shotokan) karate. Ég datt inn á þessa síðu fyrir tilviljun þegar ég var nýbyrjaður að æfa og mér finnst hún alveg gargandi snilld. Þarna er bókstaflega allt sem viðkemur shotokan rætt ofan í kjölinn af bandarískum 3. dan sem hefur kennt í yfir 15 ár og það besta er að þetta er ekki þessi venjulegi...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok