Ég er alveg úti að aka í þessum kickbox-heimi. Nú las ég hér nýlega frásögn drengs sem heimsótti Vos Gym í Hollandi og hafði af gagn og nokkurt gaman eftir frásögninni að dæma. Segið mér nú, kickbox-gaurar, er kickbox og thai box sama fyrirbærið? En muyi thai?

Hver eru helstu tæknileg einkenni kickbox og hve mikið líkist það t.d. karate eða TKD? Þá fýsir mig einnig að vita hvernig gráðunarkerfi er notað í kickboxi.

Og svariði nú.