Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Góður augnlæknir? (6 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 1 mánuði
Sælt veri fólkið. Getur einhver bent mér á ágætis augnlækni í Reykjavík?

Gallup könnun (11 álit)

í Tilveran fyrir 14 árum, 1 mánuði
Það hringdi gaur í mig frá gallup í fyrradag og spurði hvort ég gæti verið með í könnun, hann spurði mig um póstnúmer og að þetta væri eitthvað alþjóðlegt og myndi taka svona 40 mínútur en hann þyrfti að koma heim til mín og taka viðtalið/láta mig fá könnun. Ég sagði nei. Kærastinn minn fékk sömu hringingu í gær og sagði upphaflega já en var svo upptekinn þegar gaurinn vildi fá að tala við hann en fannst svoldið skrítið að þetta gæti ekki átt sér stað hjá þeim eða gegnum síma. Ég bara spyr...

Hverjir eiga finkur? (8 álit)

í Fuglar fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Bara smá forvitni í mér. Ég fékk mér 2 zebra finkur núna í janúar. Eru einhverjir fleiri sem eiga zebra finkur hérna og ef svo hve margar? Eða kannski einhverja aðra tegund af finkum? Hægt að sjá myndir á www.blaka.bloggar.is þar sem ég og hinn eigandinn (litla systir) settum upp smá finku-blogg til gamans.

Stjórnandi (7 álit)

í Fuglar fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Er enginn sem hefur neinn áhuga á að taka að sér stjórnendastöðuna hérna?

Listamaður mánaðarins (0 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Sælir myndlista-hugarar. Ég vildi bara benda ykkur á kubbinn sem bættist við fyrir 3 mánuðum síðan sem er titlaður Listamaður mánaðarins. Ég vil hvetja ykkur til þess að senda á mig eða Hadrianus svör við spurningunum. Þetta er frábær leið til þess að fá smá innsýn í listalíf hugarana hérna. Ef ykkur líkar ekki spurningarnar er ykkur einnig leyfilegt að senda bara inn smá texta um ykkur og ykkar list.

Fartölvur + Photoshop (5 álit)

í Apple fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Sælir hugarar. Ég er búin að vera að hugleiða fartölvukaup í nokkurn tíma og hef ég heyrt frá mörgum að mac séu bestu tölvurnar í grafíska vinnslu, photoshop og önnur þess konar forrit. Nú hef ég aldrei notað mac tölvur og hef áfalt haldið mig við PC tölvurnar og spyr því, eru mac fartölvurnar betri í þetta og þarf maður að kaupa öll forrit upp á nýtt til þess að geta spilað þau í þessum tölvum? Öll hjálp vel þegin.

FFX monster health (6 álit)

í Final Fantasy fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Ég var að byrja að prófa að spila FF í fyrsta skiptið og FFX þá. Það er eitt sem fer rosalega í taugarnar á mér en það er þegar ég er í battle mode þá get ég ekki séð health-ið á vondu gaurunum sem ég er að berjast við, en svo virðist það detta inn öðru hverju. Veit einhver hvernig ég get alltaf séð það?

Guitar hero gítarar (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Sælt veri fólkið. Er hægt að kaupa þessa blessuðu gítara staka einhverstaðar? Ég hef bara séð þá þar sem þeir eru hluti af leikjapakka.

PS2 verð? (5 álit)

í Leikjatölvur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Ég var að velta því fyrir mér hvar er ódýrast að kaupa sér Playstation 2 leikjatölvu. Ég sá að Elko er að selja hana á um 25 þúsund, er hún ódýrust þar eða einhverstaðar annarstaðar?

Áhugi (2 álit)

í Dulspeki fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Sælir hugarar. Er einhver áhugi fyrir því að reyna að halda þessum korki lifandi eða á ég einfaldlega að taka hann út?

Öflugir pennar óskast (1 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 4 mánuðum
http://www.hugi.is/forsida/announcements.php?page=view&contentId=7013840 Hefur einhver sýnt áhuga á þessu fyrir /myndlist? Það væri auðvitað mjög ánægjulegt að fá einhvern í þetta þótt að mér þætti líka ánægjulegt að fá bara fleiri greinar inn :)

Get ekki teiknað (20 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Ég fór aðeins að pæla í þessu sértaklega eftir umræðuna um ‘Gott skap’. Nú vill svo til að seinustu viku get ég ekki teiknað, ég bara virkilega get ekki sest niður og teiknað eitthvað, byrja kannski en gefst svo strax upp. Ég veit alveg hvers vegna þetta er, þar sem ég er undir töluverðu stressu og álagi vegna persónulegra mála. En þetta fer mjög í taugarnar á mér þar sem ég er vön að teikna eða skissa eitthvað á hverjum degi. Þetta er eins og ritstífla en hana kann ég að leysa en ekki...

Orðafjöldi bóka (8 álit)

í Bækur fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Sælir hugarar. Veit einhver hvað venjulegar unglingabækur eru vanalega með háan orðafjölda. Þá á ég ekki við epískar bækur eins og Harry Potter 5 eða eitthvað svo langt, heldur venjulega bók sem er kannski 200-300 bls í pocket stærð. Ef þið hafið einvherja hugmynd um þetta, endilega látið mig vita :)

Orðafjöldi (8 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Sælir hugarar. Veit einhver hvað venjulegar unglingabækur eru vanalega með háan orðafjölda. Þá á ég ekki við epískar bækur eins og Harry Potter 5 eða eitthvað svo langt, heldur venjulega bók sem er kannski 200-300 bls í pocket stærð. Ef þið hafið einvherja hugmynd um þetta, endilega látið mig vita.

Finkur (4 álit)

í Fuglar fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Sælir hugarar. Ég er með nokkrar spurningar í sambandi við finkur. Í fyrsta hver er líftíminn hjá þessum fuglum? Er óhætt að hafa mismunandi tegundir saman? Hversu stór búr þurfa þær helst? Og er gamla búðin Furðufuglar og fylgifiskar enn sú besta þegar það kemur að fuglum eða er það liðin tíð? Ég vona að einhver geti svarað þessum vangaveltum mínum.

Myndlistarsamfélög á netinu (3 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Sælir kæru hugarar, ég er bara með smá pælingar í gangi. Það eru auðvitað til rosalega mikið af svona samfélögum á netinu og þekki ég helst til deviantart og elfwood. Mig langaði bara að athuga hvort þið vissuð um einhver önnur álíka skemmtileg svæði þar sem fólk er að setja inn myndirnar sínar, halda utanum gallerý og skoða myndir hjá öðrum og svo framvegis. Er deviantart bara skemmtilegasti staðurinn eða eru einhverjar síður þarna úti sem ég er gjörsamlega að missa af?

Getur maður fengið hita af höfuðhöggi? (3 álit)

í Heilsa fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Titilinn segir allt sem segja þarf.

Lesendur Draugadans (9 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Sælt veri fólkið. Draugadans er búinn í bili en ég ætla að biðja þá sem höfðu fyrir því að lesa að hjálpa mér aðeins. Nú mun ég fara að lesa þetta allt betur í gegn og breyta því sem betur má fara (t.d. gera öll nöfnin íslensk) Þannig var eitthvað sem þið lásuð, hvort sem þið lásuð bara einn eða fleiri kafla, sem þið munið eftir að mætti betur fara? (fyrir utan aragrúa minn af málfræði og stafsetningavillum). Eitthvað sem mætti betur fara í, persónum, söguþræði, stílnum eða hvað sem er....

Forvitni - Listaháskólinn (8 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Smá forvitni í mér. Er einhver sem stefnir á að fara í listaháskólann í haust? Eða jafnvel seinna, og ef svo á hvaða braut? Eða er einhver nú þegar kominn þangað? Stefni sjálf á að fara í haust í grafíska hönnun.

Nexus - Ponyo (2 álit)

í Anime og manga fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hefur Nexus verið að selja Ponyo, hef ekki rekist á það hjá þeim allavega þegar ég var það seinast. Veit einhver?

Jamboree 2011 (5 álit)

í Skátar fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Hey veit einhver hvort það sé kominn áætlaður kosnaður fyrir jambó í Svíþjóð fyrir þáttakendur og staff?

Photoshop og teikniborð (18 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Jæja það vill svo til að ég setti upp PhotoshopCS4 um daginn en er búinn að vinna með Photoshop7 í lengri tíma. Ég er með bæði forritin á tölvunni eins og stendur. Hinsvegar virðist blessað teikniborðið mitt virka betur í Photoshop 7, penninn er sem sagt næmari þar en í CS4. Einhver lent í svipuðu og ef svo er, er þetta stillingar atriði eða er Photoshop 7 bara að rule-a?

Sjálfsmynd (8 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Jæja myndlista hugarar hvernig er þetta, ætlið þið ekki að senda neitt inn fyrir þemað? Þetta var nú vinsælasta þemað í könnuninni þannig ég er svona að vona að fleiri ætli að senda inn. Mér finnst það sennilegt að ég framlegni frestinn til 10. nóvember ef fleiri fara ekki að senda inn en koma svo :)

Hvítt púður (7 álit)

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Veist einhver hvar væri hægt að nálgast hvítt púður? Þá meina ég ekki það ljósasta hjá venjulegum snytrivörumerkjum heldur helst alveg hvítt :)

Listamaður mánaðarins (6 álit)

í Myndlist fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Jæja hugarar, hér var smá pæling hvort að þið hefðuð áhuga á að fá inn kubb með listamanni mánaðarins, semsagt ykkur. Ég veit að það er svipað í gangi á öðrum áhugamálum og langaði að vita hvort það væri einhver áhugi fyrir þessu hér. Þá gæti komið fram hugarinn, hvers konar list hann er að stunda, hverjir hans uppáhalds listamenn eru, hvaðan hann fær hugmyndir og svo framvegis. Einhver áhugi?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok