„Flest það sem fer í vöru eins og tölvuleikina sem við framleiðum þarf fyrst að verða til sem hugmynd,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP. Fyrirtækið vinnur nú að undirbúningi nýrrar teikninámsbrautar í Myndlistaskólanum í Reykjavík í samvinnu við Tækniskólann. Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður í Steinunni, vinnur að samskonar verkefni með skólunum fyrir nýja textílbraut. Myndlistakólinn fékk 50 milljóna króna Evrópusambandsstyrk til að þróa og...