Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nördar???? (4 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Eitt sem er virkilega að pirra mig! Afhverju eru áhugamenn um Star Trek, Star Wars, Babylon 5, etc. Kallaðir nördar? Er þetta ekki áhugamál eins og allt annað, á ég að fara að kalla foreldra mína nörda því þau horfa á Sopranos?? Ég er svo virkilega pirraður á þessu, þetta eru mín áhugamál og ég má hafa gaman af því sem ég vill. Ekki það að það pirri mig neitt að viti ef ég er kallaður nörd, bara að það meikar ekki sens. Hvað finnst ykkur?<BR

Veit ekki hvað ég á að gera... (13 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Málið er að ég er búinn að vera ástfanginn af stelpu og bef heitar tilfinningar til hennar. Og þangað til í dag er hún búin að vera með öðrum strák, félaga mínum. Við erum ekkert bestu vinir, en samt félagar. Þau hættu saman því það var engin ást í sambandinu. Nú sé ég hér opna leið fyrir mig en ef ég segi henni tilfinningar mínar þá er ég hræddur um að hún brjálist því við tvö erum góðir vinir og það er ég sem hjálpaði henni að krækja í gaurinn upprunalega því hún bað mig um það (þóo ég...

Bróðir minn er þyrstur (8 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég veit ekki hvað ég á að segja, það er eins og slökkni á sálinni. Ljósastaurar gnæfa yfir borgina líkt og börn næturinnar, dansa á himnum. Velkominn í huga geðveiks manns. Ætli þetta hafi ekki allt byrjað þegar ég drap næstum föður minn, Málið var að eins og alla fimmtudaga var svið í matinn, sama gamla rútínan, kjamminn á borðið! En þá gerðist eitthvað sem ég bjóst ekki við, það kviknaði á ljósastaurunum mínum…kindin talaði. “Má ég fá vatnsglas, ég er eitthvað svo þurr í hálsinum?” Ég...

Villa í skoðanakönnun (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Bara svona láta vita að þetta heitir “Vulcan nerve pinch” ekki neck, málið er að klipið er í taug sem gerir þig meðvitundarlausan. Viss um að einhverjir aðrir hafi tekið eftir þessu.

Sápuóperur? (13 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sælir kæru Trekkarar. Ég veit að nú er ég ekki vinsæll, en persónulega finnst mér að það sé búið að drepa Star Trek. Ok, til að byrja á byrjuninni þá rokkaði TOS og TNG, það er ekkert jafn gaman og að horfa á þetta. Svo kom DS9, þvílík snilld! Þangað til eftir svona, 3-4 season, þá varð þetta orðinn viðbjóður, lélegar tæknibrellur (dæmi þegar transporter er notaður er það aldrei sýnt, þeir snúa alltaf frá honum og maður heyrir bara hljóðið!) Come on, Vic???? Hver annar en ég slökkti á...

Niður lífsins (2 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ástæða þess að ég skrifa þér bréf er sú að ég þarf að sýna þér hug minn til þín. Tilfinningar mínar brenna. þú lýsir upp minn tóma heim, heim án tilfinninga, því þær fara í annað. Tilfinningar mínar eru heitari en ég hef fundið áður, unni ég þér það mikið, ástin mín. Þig á aldrei eftir að gruna hve heit mín ást er til þín. Ég þrái að rétta þér þetta bréf næst þegar við hittumst, líta í guðdómleg augu þín, kyssa þig á vangann og rölta burt. En aðstæður lífsins koma í veg fyrir það, þú ert...

Ljóð eru eins og þú túlkar þau. (12 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég veit ekki um ykkur hin en ég er mjög pirraður á þegar einhver skrifar ljóð sem skiptir hann/hana miklu máli eða bara venjuleg ljóð að það eru fólk hér sem gerir ekkert nema móðga höfundana. Ljóðin sem aðrir skrifa skipta þig kannski engu máli, en þau geta skipt höfundinn miklu máli. Þið megið túlka ljóðin eins og þið viljið, en ef ykkur finnst það ekki gott að ykkar mati, ekki vera með skítakast. Ef ykkur finnst það ljótt, ekki svara. Takk fyrir Aina

Æskuminning um Lalla vin minn (9 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fyrsta æskuminningin mín er síðan ég var á aldrinum 2-3 ára og var mikið uppí bústað með foreldrum mínum og lék mér mikið einn. Nú er ég ekki viss hvernig ég kynntist honum Lalla vini mínum, en til að gera langa sögu stutta þá urðum við perluvinir. Það versta við Lalla var nú bara það litla smáatriði að aðeins ég gat séð hann og heyrt í honum, en það stöðvaði okkur ekki. Ef ég er beðinn um að lýsa honum Lalla vini mínum þá er það eina sem ég get sagt, hann var smaladrengur. Einhvern daginn...

Blár skjár! (14 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég á í eilitlum vandræðum og ætlaði að athuga hvort einhver hér gæti aðstoðað mig. Málið er að ef ég fer í einhvern leik þá fæ ég bláan skjá og þarf að reboota. Get ekki spilað cs…..:( Málið er að ég var með bilaða viftu á sjkákortinu mínu og fékk nýja, samt hélt þettta áfram, nú er ég með kort í láni og virkar það fínt fyrir utan bláa skjáinn :) Ég er búinn að eyða win, formatta, re-installa öllum leikjum, patcha…..name it. Ef þið getið hjálpað sendið þá línu á einzi@simnet.is eða postið...

Hver er skoðun þín á Yuuzhan Vong? (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 23 árum, 4 mánuðum

Hvernig skrifar þú ljóð? (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum

Ástæðan ert þú.. (8 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hann stendur á þakbrúninni, það er rigning. ´Hvað er ég að gera hér?` Hugsar hann með sjálfum sér, hann lítur á bréfsnifsi sem hann heldur í vinstri hönd sinni ´svarið er þarna`. Hann lítur yfir Breiðholtið, þar sem hann hefur búið allt sitt líf…sem nú er búið. Droparnir brátt hverfa og það byrjar að snjóa, loksins..jólasnjórinn, ´en það er of seint fyrir mig…`. Hann tekur eitt skref nær brúninni og horfir niður, ´fólkið er allt svo smátt….getur ekki sært neinn` hugsar hann með sér og heldur...

Sei sei... (0 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Microsoft(R) Windows 98 (C)Copyright Microsoft Corp 1981-1999. C:\WINDOWS>cd.. C:\>ping simnet.is Pinging simnet.is [194.105.226.1] with 32 bytes of data: Reply from 194.105.226.1: bytes=32 time=29ms TTL=252 Reply from 194.105.226.1: bytes=32 time=29ms TTL=252 Reply from 194.105.226.1: bytes=32 time=29ms TTL=252 Reply from 194.105.226.1: bytes=32 time=19ms TTL=252 Ping statistics for 194.105.226.1: Packets: Sent = 4, Received = 4, Lost = 0 (0% loss), Approximate round trip times in...

Blár veggur (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég veit að þú elskar hann, hvernig dettur mer í hug að reyna. Mér líður svo illa, husa um þig allan sólarhringinn, sé brosið þitt fyrir mér. Svo er þú komst til mín um daginn og ég bauð þér sætið mitt og þú sast þarna, ég gat ekki haf af þér augun. Varir þínar svo fallegar og þú leist á mig og brostir, ó þessu fallega brosi. Hluti af mér langar til að taka upp símann núna og segja þér að ég elska þig, segja þér hvaða tilfinningar ég ber til þín. Vona að þú lesir þetta á leið þinni um vefinn....

Svindl (5 álit)

í Half-Life fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég vill tilkynna svindalta meðal oss. Það átti ser stað þann 7.des kl 21:00 á ISNET A : de_prodigy Respectmyauthoritha byrjaði á því 2 sinnum að auglýsa aimbot 3 og þegar ég spurði hann útí hvort hann væri að svindla með aimbot sagði hann orðrétt “Eina svindlið sem ég nota er FUnscript.cfg” Fjandinn var rekinn úr Hate jr fyrir minna, ég legg til að hann verði bannaður eða eitthvað. p.s. Ég er með screenshot af því þegar hann sagði þetta [ds]Kormakur<BR

Sorg (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Stúlka ein, glöð á brá, fíngert andlit og brúnleitt hár. Ást mína vissi ég eigi þá, skilur eftir á hjarta'mínu sár. Ekki fékk ég hennar ást, fékk hún hamingjuna þó. Fékk hún sina heitu ást, sál mín rifnaði og dó. Sit ég einn og yfirgefinn, ást mín eigi uppgufuð. Sál mín er því fegin, er ég heyri hennar rödd. Rödd sem hlýjar, rödd sem birtir, rödd sem ég elska og þrái. Augu hennar djúp sem hafið blátt, varir hennar sem rósarblöð…sem ég mun aldrei tína.

Er þetta tilgangur lífsins? (3 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég get ekki hætt að hugsa um hana, græt mig í svefn, er með fiðrildi í maganum, hugsa um rödd hennar, svíf á vit drauma minna. Hví, ó, hví þurfti hún að velja hann? Sálufélögum er meint að vera saman og hún er púslið sem fullkomnar líf mitt. En ekki sér hún mig sem meira en vin, ekki enn….ekki einn, ég þarfnast hennar, vil aðeins halda utan um hana og hvísla ástarorð í eyru hennar, halda í þessa fíngerðu hendi. Bara einu sinni….og svo oftar. En hún valdi hann og sætti ég mig við það…hún á...

Til hvers? (10 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég veit að eitt sinn elskuðum við hvort annað, tíminn leið svo hægt, áttum við 3 kvöldstundir saman, sálufélagar sem fundu hvort annað. Enginn koss var nauðsynlegur, ekkert nema faðmlag meðan við lágum og ég strauk hönd þína. Þú fórst heim til þín og ég fór heim til mín, lífið hélt áfram. Alltaf var jafn gaman að heyra rödd þína, alltaf svo kát og full af lífi. En gamla klisjan virðist alltaf sigra „Long distance relationships never work“, en alltaf hélt ég í vonina, dreymandi um mig og þig,...

Okkar kvöld (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég kyssti þig, það var stutt, en mér fannst þetta taka heila ævi. Ég var dreginn áfram, af ómótstæðilegum krafti sem ég gat ekki stjórnað. Svo mikil ánægja á einu augnabliki, augu mín voru blaut vegna tára, allur líkami minn og sál kippptist til af ánægju, tilfinningar flæddu milli okkar. Þetta lýsir því, hve vel mér leið með þér. Í sælukasti, haltraði ég heim, og fann að mig vantaði að halda í hönd þína og faðma þig í eitt skipti enn. Ég hvarf á braut drauma……..ánægður.

Ein samin af mér í ástarsorg (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég elskaði þig, þráði þig af öllu mínu hjarta, ég treysti þér. Ég treysti þér fyrir hjarta mínu, brothætt eins og það er. Og mölvar þú það, mér leið eins og sólu er ský leggst fyrir mig, stöðvar ást mina. En ég fann leið, ég hélt áfram að elska, og þú sagðist elska mig en var það sannleikurinn? Var það raunveruleikinn? Gastu enn elskað mig? Var ástin enn til staðar? Eða var hún mölvuð, eins og hjarta mitt í lúkum þér? Gastu virkilega enn haldið á hjarta mínu sem sló ákaft að ást til þín og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok