Mariusz Pudzianowski VS Tim Sylvia Pudzianowski tók þá heimskulegu ákvörðun að fara í hin reynda Tim Sylvia í sínum þriðja bardaga og endaði bardaginn þannig að Mariusz lá í jörðinni með Sylvia ofan á sér í side control og gafst upp þar sem hann var gjörsamlega sprunginn á því og var ekki að gera neitt annað en að láta liggja niðri og láta lemja sig.

Fyrir ekki svo löngu voru notendur hér á þessu áhugamáli að tala um að Mariusz myndi rústa öllum í MMA útaf styrk sínum og töluðu um að litla feitabollan Fedor myndi ekki endast mínútu gegn honum og svo framvegis (þess má geta að Fedor afgreiddi Sylvia á 36 sekúndum þegar þeir börðust)

Það er ekki nóg að vera sterkastur í heimi til að vera einn af bestu bardagamönnum heims, gott að gera sannað það algjörlega fyrir þeim sem héldu þessu fram.