Sumar áskorun á /heilsa!!!

Já það er rétt, í sumar ætlum við að hafa sumar áskorun hérna á /heilsa. Hún virkar þannig að þú skráir þig hérna og sendir svo inn mynd af þér í núverandi ástandi, með nýlegt dagblað í myndinni til þess að koma í veg fyrir svindl.

Svo í enda sumars sendið þið inn nýja mynd með breytingunni og það verður kosning um það hver hefur náð mestum árangri, hvort sem það er að brenna fitu eða byggja vöðva.

Á núverandi stundu er ekki planað að hafa neina vinninga en ég get prófað að tala við Vefstjóra og spurja hvort hægt sé að redda því einhvernveginn.