Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Vill ekki snýta sér!! (6 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Hvað gerir maður eiginlega þegar 3 ára sonur manns er með flensuna og vill ekki snýta sér! Greyið strákurinn er svo stíflaður, við notum svona barna nefúða og hann er mjög sáttur við það og vill nota það. (Við notum hann í hófi). En hann kann bara ekki að snýta sér, hann býr bara til svona snýtu-hljóð með munninum og blæs!! haha.. Ég keypti bara svona “nefsugu” til að redda honum ef að hann er mikið stíflaður. En hann er bara sjaldan kvefaður að kannski er það þess vegna sem hann kann ekki...

12 vikna sónar - er það fyrir allar konur? (13 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Jæja, nú er ég komin 10 vikur eftir 2 daga. Ég á að fara í mína fyrstu skoðun eftir 2 vikur. Ég spurði kvensjúkd.lækninn minn þegar ég fór í snemmsónarinn til að athuga hvað ég væri komin langt. (Fyrir 4 vikum) Ég var að spyrjast fyrir hvort að allar konur færu núna í þennan 12 vikna sónar, og hún sagði að það væri nú bara ætlað fyrir konur sem væru eldri en 35 ára eða væru í einhverjum áhættuhópi. Ekkert mál, ég var bara að forvitnast aðallega. Það er mæld hnakkaþykktin á fóstrinu, en til...

Börn og látnir ættingjar/ástvinir. (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Snorri Sævar er kominn núna á það stig að hann spyr um allt milli himins og jarðar. T.d. Hvað borða sum dýrin? Einn daginn hljóp hann til mín og tilkynnti mér það að himininn væri brotinn!! :o) Þá var svona “Þoturák” á himninum og hann hélt sem sagt að hann væri að brotna í sundur…ha ha.. En núna eru það miklar vangaveltur varðandi ömmu Ragnhildi, þ.e. mömmu mína sem lést langt fyrir aldur fram 8 mánuðum áður en hann fæddist, þá aðeins 50 ára gömul. Hann talar mikið um það að hún sé dáin,...

Skarlatsótt og Streptókokkasýking (2 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Jæja, í dag er strákurinn okkar 3 ára! :o) Stóri strákurinn..hehe… Það átti að halda barnaafmæli um helgina en á föstudagskvöld var hann orðinn veikur og laugardagsmorgunn fórum við með hann á Læknavaktina og þar var hann greindur með Skarlatsótt (Streptókokkasýkingu). Við hjónin vorum nú bara eitt spurningamerki, úff bara… Skarlatsótt, okkur fannst það bara vera einhver sjúkdómur frá miðöldum!!! ha ha ha… En, mikið rosalega er þetta mikið í gangi núna. Tvær vinkonur mínar voru líka með veik...

Leikskólar og flutningar. (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mig langar svo að vita hvort að einhvert ykkar veit hvernig það gengur fyrir sig, t.d. að vera með barn á leikskóla í Kópavogi og flytja til Reykjavíkur. Við erum að spá og spekúlera hjónin að fara að kaupa stærri íbúð. Liggur reyndar ekkert á, en samt erum við farin að pæla aðeins. Málið er að við erum svo ofboðslega ánægð með leikskólann sem strákurinn er í, að við tímum ekki að sleppa honum! Þetta er bara frábær leikskóli að öllu leiti og honum líður svo ofboðslega vel þar!! :) Spurningin...

Að klæða sig sjálf. (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mig langar að spyrja ykkur hvað ykkar börn voru gömul þegar þau byrjuðu að klæða sig sjálf. Þ.e. alveg hjálparlaust. Og þá meina ég í föt sem að ég legg fram!! *fliss* Ekki það sem hann myndi velja, sem væri örugglega Manchester United stuttbuxur, ullarpeysa, grænir sokkar,axlabönd og gúmmístígvél! :) Ég veit það að strákurinn minn klæðir sig í kuldagallan og allar græjurnar sjálfur á leikskólanum (voða duglegur), en hann nennir því eiginlega ekki heima. :) Á morgnanna þá klæði ég hann...

Í hvaða röð koma jólasveinarnir ? (17 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég var að leita á netinu yfir það hvaða jólasveinn kemur fyrst og svo koll af kolli.. :o) Þetta er fyrsta árið sem að strákurinn minn setur skóinn út í glugga og ég verð nú eiginlega að vita hvaða jólasveinn kemur hvenær! haha… Ég hef heyrt skemmtilegar sögur að fólk hefur sett skyrdollu út glugga þegar Skyrgámur kemur, kerti þegar Kertasníkir kemur ofl. þess háttar. Og þá hefur svo barnið orðið frekar hissa þegar jólasveinninn er búið að borða skyrið og taka kertin morgunin eftir… sniðugt!...

Hvað á barnið að heita?? (21 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mannanafnanefnd! Er þetta ekki orðið löngu úrelt fyrirbæri??? Það er verið að samþykkja hin fáranlegustu nöfn og hafna ósköp venjulegum nöfnum stundum. Úr mbl.is Mannanafnanefnd samþykkir Marthen en hafnar Nielsi Mannanafnanefnd hefur samþykkt karlmannsnöfnin Marthen og Jóndór auk kvenmannsnafnið Annía. Karlmannsnafninu Niels var hafnað sem og kvenmannsnafninu Christine á fundi nefndarinnar á fimmtudag. Í rökstuðningi fyrir höfnun á nafninu Niels segir að það teljist ekki vera ritað í...

Mannanafnanefnd - úrelt fyrirbæri? (2 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mannanafnanefnd samþykkir Marthen en hafnar Nielsi. Mannanafnanefnd hefur samþykkt karlmannsnöfnin Marthen og Jóndór auk kvenmannsnafnið Annía. Karlmannsnafninu Niels var hafnað sem og kvenmannsnafninu Christine á fundi nefndarinnar á fimmtudag. Í rökstuðningi fyrir höfnun á nafninu Niels segir að það teljist ekki vera ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki teljist vera hefð fyrir slíkum rithætti í sambærilegum nöfnum. Þá segir í skýrslu nefndarinnar, sem birt er á vef...

Endurskinsmerki! (5 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er orðið svo hrikalega dimmt úti núna á morgnana og líka bara fyrir kvöldmatarleiti. Ég vildi bara minna alla á að tékka á því hvort að barnið/börnin séu ekki vel merkt á bak og fyrir! Endurskinsmerkin eru til í mörgum formum, bæði límd,saumuð,hangandi,stórt band ská yfir búkinn ofl. Pössum litlu krílin okkar í skammdeginu. :) Með því að merkja þau vel með endurskinsmerkjum þá erum við að fyrirbyggja það að ökumenn og fleiri sjái þau ekki. Slysin gera ekki boð á undan sér. kveðja honeybun

Þvílíkir bullukollar! :) (4 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég er búin að vera að reyna að halda utan um “gullmolana” sem að koma frá syni mínum. Hann er núna farinn að koma með svo skemmtilegar “sögur” að við pabbi hans erum alveg í kasti stundum! ha ha.. Upp á síðkastið er hann búinn að vera með svo skemmtileg comment að það er alveg frábært! Eins og um daginn, þá var ég að lesa fyrir hann og þegar við vorum hálfnuð með bókina þá snýr hann sér að mér og segir “ Ég nenn´ekki að hlusta á þig lengur”! Og brostir bara!! Ég bara sprakk úr hlátri… Svo...

Jólaland opið í byrjun nóvember.. (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Jæja, alltaf er verið að flýta jólaauglýsingunum og jóladótinu í búðunum. Nú sá ég að það er byrjað að auglýsa að Jólaland er opið í Blómaval, með jólasveinum og öllu tilheyrandi! Ég verð að segja það að mér finnst það fullsnemmt en samt ætla ég að fara með minn strák fljótlega að kíkja. :o) Hvernig er það, hafið þið farið með ykkar krakka ? Eða finnst ykkur þetta allt of snemmt? Minn var svo spenntur þegar snjórinn kom að hann vill helst bara syngja jólalög og búa til snjókarla úti í garði...

Vítamín/Lýsi fyrir börnin. (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég var að spekúlera með það hvort þið gefið börnunum ykkar Lýsi eða Frískamín eða eitthvað svoleiðis. Nú þegar flest öll börnin fara að stíflast af hori og hóstandi, þá er ég að spá í þessum hlutum. Er einhver ástæða til að þau taki inn fleiri vítamín eða meira magn þar sem veturinn er að skella á ? Og líka hvar er hægt að finna hversu mikið þau mega fá, miðað við aldur og þyngd? Minn strákur tekur Frískamín, en er það bara sykurleðja eða hvað ? Hvort er betra að taka, Lýsi eða Frískamín ??...

Afmælis- og jólagjafir - hvar eru takmörkin ? (17 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég var í barnaafmæli um helgina og varð bara að spyrja ykkur um álit á þessu máli, þ.e. hversu mikið telst “eðlilegt” að eyða í afmælis- og jólagjafir fyrir barnið sitt ? Ekki það að sá drengur hafi fengið eitthvað óeðlilega mikið af gjöfum eða þannig, reyndar fékk hann mikið af “nytsamlegum” gjöfum eins og náttfötum,sokkum,húfu,nærföt og þess háttar, en hann var nú frekar spældur yfir því.. ha ha.. á 3 ára afmælinu.. En það lagaðist þegar “hörðu” pakkarnir komu ! :) Stundum blöskrar manni,...

Fyrsta ferð til tannlæknis - hvenær?? (14 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mig langar að forvitnast hvenær þið fóruð fyrst með börnin ykkar til tannlæknis? Minn strákur verður 3 ára í janúar og það var verið að benda mér á það að fara með hann bráðum til tannsa. :) Hann er reyndar með mjög fallegar og hvítar tennur, við erum dugleg að passa upp á að bursta reglulega. En hann var svo lítill þegar hann byrjaði að fá tennur bara rúml. 3 mánaða, ætli tennur á börnum sem að eru svona ung þegar þau fá þær - skemmist frekar heldur en á öðrum börnum ? Eru þau ekki bara...

Keisaraskurður eða eðlileg fæðing. (45 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mig langaði bara til að forvitnast aðeins með ykkur allar/alla sem eigið börn og eru að skrifast hér á inni á Huga. Hvað hafa margar af ykkur farið í keisara ? Eða hafið þið heyrt einhverjar sögur af því ? Og ef svo, vitið þið af hverju, þ.e. var það bráðakeisari eða fyrirframákveðinn keisari ? Ég spyr bara vegna þess að minn sonur fæddist með keisaraskurði, það var bráðakeisari vegna þess að það varð orðið litað legvatnið, hjartslátturinn hans datt alltaf niður eftir hríðar og útvíkkunin...

Undirbúningur barna fyrir jólin. (6 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mig langar að athuga hvort að einhverjar af ykkur er með einhverjar hugmyndir að annaðhvort skemmtilegu föndri,bakstri eða einhverju skemmtilegu til að gera með börnunum sínum fyrir jólin. Þá er ég aðallega að hugsa um eins og fyrir aldurinn ca.3-4 ára. Það er hægt að pensla á piparkökur og kannski mála myndir.. en ég var að hugsa um hvort að þið væruð með einhverjar nýjar hugmyndir fyrir mig. Sjálf er ég mikil föndurkerling og finnst alveg rosalega gaman að dúlla mér svona með syni mínum,...

Að eignast nýtt systkin. (12 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mig langaði að vita hvort að einhver af ykkur gæti sagt mér einhverjar dæmisögur af því hvernig eldri börn bregðast við þegar þau fá ný systkin eða er sagt að þau eiga von á bróður eða systur. Nú eigum við hjónin 1 strák sem er að verða 3 ára og erum farin að “plana” annað. :o) Hvernig er það, hafið þið eitthvað undirbúið eldri krakkana fyrir það, talað við þau um það hvernig þetta verði þegar nýja barnið komi í heiminn.. Ég spyr bara af því að ég er sjálf yngst af mínum alsystkinum (á...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok