Ég samhryggist þér innilega! Ég átti yndislegan kött þegar ég var lítil, sem kúrði alltaf uppí hjá mér á nóttunni, lék sér alltaf með okkur systkinunum og huggaði mig þegar ég grét. Þegar hann var 5 ára (ég held ég hafi verið 10) kom ég heim af fimleikaæfingu og þar voru mamma og pabbi og bræður mínir öll grátandi (ég hafði aldrei og hef aldrei síðan séð pabba minn gráta!) og sögðu mér að kisan mín, uppáhald okkar allra hafði orðið fyrir bíl og væri dáinn. Ég fékk auðvitað algjört áfall og...