Mig langar að deila með ykkur slúðri sem ég var að heyra frá vinkonu minni, sem heyrði þetta í tíma í stjórnmálafræði í HÍ. Slúðrið er á þá leið að þegar Bush var að ákveða að ráðast á Írak og til að reyna að sannfæra þjóðir heimsins um mikilvægi þess fundaði hann með leiðtogum helstu þjóða sem hann vildi fá á sitt band, og einn af þeim var að sjálfssögðu Jaques Chirac. Chirac var einstaklega skeptískur á þetta eins og við vitum og Bush var með mikinn áróður um það hvað árásin væri mikilvæg,...