Ég er alveg sammála þér þarna. Þeim, sem telja að almenningi sé ekki treystandi til að taka ákvarðanir í eigin málum, er ekki viðbjargandi. Yfirleitt eru það stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar sem hvað andvígastir eru hugmyndum um beinna lýðræði, enda er þeim tamara að álíta að stjórnmálamenn viti betur en almenningur hvað þeim er fyrir bestu, auk þess sem ríkisstjórnir taka oft umdeildar ákvarðanir í óþökk meirihluta þjóðarinnar. Mótrök, gegn beinu lýðræði, sem margir hafa viðrað, eru til...