Minn fyrsti bíll sem ég á ennþá og hef átt í eitt ár ef ég man rétt, er Honda Accord 2.2 lítra (einn af fáum) '91 árgerð með rafmagni í öllu, spes áklæði, topplúgu, spoiler osfrv. Snilldar bíll sem er gott að keyra langar vegalengdir, en er hörmulegur í búðarrölt (beygjuradíus frá hinu neðra!). Mjög Þægilegur, lítið veghljóð, kraftmikill (að mér finnst), sportlegur, en alls engin rallíkerra… lítil elska ;)