Áfram skátaáhugamál! Skátar eru snilld! Ég var í skátum í mörg ár og ég kann ekki fleiri hnúta en meðalmaðurinn, kann reyndar nokkur lög en er það ekki bara fínt þegar maður fer í fyllerísútilegur og vill stemningu? Það er til dæmis oft sorglegt að sjá fólk sem ekki kann að ferðast. Fólk sem kann ekki einu sinni að setja upp tjald! Hvað þá að búa sig rétt. Í skátunum færðu að prófa, læra og upplifa hluti sem að venjulega myndi maður ekki! Til dæmis það að síga og klifra, fara í útilegur,...