Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég er nokkuð viss um að þú vitir ekki muninn á almennum réttindum og grunnréttindum

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það er nú ekki rétt hjá þér. Auðvitað fer það eftir því á hvað þú ert að horfa á svo sem í heimspeki hafa þeir ekki verið mjög sterkir en í hagfræði og almennum vísindum hafa þeir gefið mikið af sér svo ekki sé minnst á þátt þeirra í þjóðarrétti.

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú ert að ruglast á réttindum og grunnréttindum það er ekki samai hluturinn.

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Gott að þú skulir hafa komið þvi fram að þú hafir búið í USA, ég sé bara ekki hvaða máli það skiptir. Þú hefur ekki réttarar fyrir þér þó þú hafir búið þar. Auk þess ertu ekki ein um að hafa búið í US. Talandi um mannréttindasamtök þá gef ég lítið fyrir skoðun þeirra enda fæst þeirra sem skilgreina mannréttindi rétt. Það er reyndar önnur umræða og snýst um hver séu raunveruleg grunndvallarréttindi. Réttast væri auðvitað að skilgreina það sem þau réttindi sem einstakligar geta sótt sér...

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú hlýtur að vera illa upplýstur eða bara svona heimskur. Munurinn á Bandaríkjunum og Hamas er nánast óendanlegur. Annað er ríki sem styður lýðræði og mannréttindi, auk þess að vera fremstir í fararbroddi hins frjálsa heims með frjálsri verslun og baráttu fyrir grunndvallar réttindum einstaklinga. Hamas eru hryðjuverkasamtök alveg sama hvernig þú lýtur á þá, þá eru þeir fyrist og fremst hryðjuverkamenn með það efst á stefnuskrá sinni að eyða Ísrael.

Re: Hegel, Marx og staðan í dag

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Menn eru enn að pæla í Hitler og Stalín, menn pæla enn í Frankó og fleirri rugludalla en það þýðir ekki að þeir hafi haft rétt fyrir sér.

Re: Hvað finnst þér?

í Battlefield fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ef það eru til það sem þú kallar “freak” atburðir þá eru reglurnar ekki afdrifalausar. Kurteisisreglur eru heldur aldrei sniðurgar þar sem menn hafa mismunandi skoðanir á því hvað telja skal til kurteisi og almenns siðferðis. Slíkar reglur bjóða upp á töluvert vald þeirra sem eiga að dæma um regluna. Að hafa radíus sem á að vera heilagur er svo sem allt í lagi en ég er nú samt þeirrar skoðunar að slíkt mydni ekki virka þar sem erfitt væri að framfylgja slíkri reglu. Myndi til dæmis radíusinn...

Re: Hvað finnst þér?

í Battlefield fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hvernig er reglan um spawncamp afdrifalaus, ef ég er að sækja fram og drep síðan einhvern sem er að spawna á þá að refsa mér? Það þarf ekki að vera af ásetningi sem ég drep mann sem er að spawna. Það koma oft upp í leikjum vafaatriði um hvort brot á reglum eigi við. Ég vil samt hafa reglur en vil bara minna fólk á að afdráttalausar reglur verða aldrei til. Hvort við förum eftir reglum segir ekkert um virðuleika þeirra. Er til að mynda 26. gr stjórnarskrárinniar virðuleg regla, við höfum...

Re: Hegel, Marx og staðan í dag

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Skrif þín minna óneitanlega á trúarrit þ.e. að ekki séu enn aðstæður fyrir kommúnisma samt var hann reyndur á tímabili og féll. Það eiga sem sagt öll ríki að gera sömu mistökin það er að taka upp kerfi þar sem kúgun er aðal drifkrafturinn. Ég skal útskýra það fyrir þér nánar og meira að segja nota þin eigin orð. Þú sagðir nefnilega eða skrifaðir réttara sagt að: “einstaklingurinn að ráða sjálfum sér. Hann á að ráða eiginn starfsferli, hvaða sjónvarpsstöð hann horfir á, hvaða maka hann velur...

Re: Hegel, Marx og staðan í dag

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég get ekki verið sammála þér að Hegel sé merkur maður. Margoft hefur verið bent á og sýnt fram á hinar ýmsu rökvillur í ritum hans. Eitt besta dæmið um slíkt er riti Karls Popper, The open society and its enemies. Ég ætla nú samt ekki að fara að elta ólar við Hegel enda tel ég hann ekki þess verðugan. Það sem mig langar hins vegar að gera er að benda þér á nokkrar rökvillur í þínum eigin texta. Öll grein þín byggir á órökstuddum fullyrðingum. Nú er ég ekki að segja að þú getir ekki haft...

Re: Hvað finnst þér?

í Battlefield fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Reglur eru aldrei afdrifalausar né virðulegar. Öll lög og allar reglur má túlka auk þess er virðuleiki ekki dæmdur út frá einni skilgreiningur heldur af hverjum og einum útaf fyrir sig.

Re: Bardagamenningin

í Battlefield fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Þú ert að gera grunndvalla mistök í greiningu þinni með lið 1 og 2. Ef lið 2 spilar drengilega þá eru yfirgnæfandi líkur á því að þeir nýti faratæki sín vel þ.e. fara margir saman í farartækin, drepa ekki fyrir fraratæki og þar eftir götunum. Ef lið 1 er fullt af fávitum eru góðar likur á því að þeir vinna ekki vel saman. Eins og allir sem spilað hafa BF2 vita þá vinna lið ekki nema vinna vel saman.

Re: Peninga og hámenntunarkrafa nútímans.

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er ekkert nema gott að menn kunni grunnhugtök í fræðum á borð við hagfræði og ég er þeirra skoðunar að það eigi að kenna börnum skil á hugtökum á borð við framboð og eftirspurn strax í barnaskóla. Er iðnmenntun á undanhaldi? Kannski ég veit í sjálfum sér ekkert um það en ef svo er þá mun það hafa jákvæð áhrif á þá sem hafa einhverja iðnmenntun. Ég skal útskýra fyrir þér afhverju, hér kemur að hugtakinu framboð og eftirspurn. Við munum alltaf þurfa iðnaðarmenn til leggja lagnir, reisa...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
nei alls ekki ég reiknaið þetta bara sem endurgreiðslu til allar íslendinga. Þú ert í raun bara að taka þá sem eru á vinnumarkaði sem er í sjálfum sér sanngjarnara enda er þetta fólkið sem borgar skattinn.

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það eru um 155.000 vinnandi menn á Íslandi

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég get ekki verið sammála þér að frjálshyggja sé ekki fyrir þá hluti sem ekki er hægt að meta til fjár. Það er einmitt grunnhugmynd frjálshyggju að verðmætamat sé í hönum einstaklingsins hann metur hvað hann telur ómetanlegt og hefur frelsi til að velja og hafna. Frjálshyggja hvetur fólk til að meta hluti svo sem list því það sem einum er ómetanlegt er öðrum verðlaust. Þegar við tölum um list þá er hún afstæð og um það hljótum við að vera sammála enda hlýtur það að vera persónulegt mat hvers...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hvað er góð dagskrágerð? Það sem einum finnst gott finnst öðrum lélegt. Á meðan við erum neydd ti að borga af þessu eiga allir eftir að hafa sína skoðun á RUV og allir vilja að hún sé rekin á þann hátt sem þeir telja að sé sér fyrir bestu. Sljum Rúv og þeir sem fíla dagskrána þar geta keypta aðgang af henni ef hún verður ekki frí.

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það gott að einhver er fylgjandi bændasamfélagi en ekki láta okkur hin borga fyrir þínar hugsjónir.

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hvar er best að búa? Það fer allt eftir því hvaða stuðul þú vilt setja fyrir þig. Hagvöxtur segir nokkuð en ekki allt það er til dæmis 38% hagvöxtur í Afganistan núna en ég vænti þess ekki að það sé betra að búa þar en í svíþjóð. Bandaríkin hafa stærsta hagkerfi í heiminum og því er eru hagvaxtatölur þeirra jafnari. Talandi um Svíþjóð þá er þetta eina landið í v-evrópu sem færi á hausin ef lífeyrisskuldbyndingar ríkisins væru gerðar upp. Þetta á eftir að verða svíum stórt vandamál þar sem...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Smá leiðrétting “Eftirtaldar upphæðir ná um 13 milljörðum eða því sem nemur um 8800 kr á hvern vinnandi mann í landinu.” á auðvitað að vera 44 þúsund á mann.

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég þurfti að tryggja mig sjálfur úti þó ég hafi ekki þurft að kaupa dýrustu trygginguna. Það er tiltölulega ódýrt að tryggja sig og skólar eru ekki dýrir og lyf er fáránlega ódýr miða við Ísland. En það skal tekið fram að tryggingin mín borgaði niður flest öll lyf, glerugu, tannlækni og 2 læknisskoðanir á ári. Ef ég hefði verið lagður inn þá hefði tryggingin dugað fyrir því en þar sem ég er íslenskur ríkisborgari hefði skyldutryggingin mín hér heima svo sem dugað fyrir spítalavist. Skrítið...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það eru reyndar ekki umdeild fræði hvernig mæla á lífsgæði spurningin er bara að reyna að fá enn nákvæmari niðurstöður. Enn þær sem notaðar eru í dag eru mjög nákvæmar. Það líka til fólk sem á ekki fyrir næstu máltíð í noregi, það er bara talað minna um það. Ég sé að þú lætur ekki staðreyndir aftra þér í trú þinni á sósíalistanum það er sama hvað er lagt fyrir þig þú vilt ekki sjá ljósið svo ég óska þér þá bara góðs gengis í framtíðinni.

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Já ég ætla að segja þér að norsarinn hefur það verra en kaninn. Það sem skiptir máli er hver er kaupmáttur launa þinna, hverjar er líkurnar á betri launum, aðgangur að lánum, vextir og skattar. Hversu auðvelt er að stofna fyrirtæki skiptir líka máli þegar kemur að atvinnuleysi og hvort það er langtíma eða skammtíma. Það eru stofnuð um 2 milljón fyrirtækja í USA á ári það fara 850 þús fyrirtæki á hausin á ári. Á meðan kaninn er við fátæktamörk í stuttan tíma er norsarinn það miklu legngur Ég...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ef lífskjör í Noregi eru svona miklu betri en í USA afhverju kemur það hvergi fram??? Mig langar að sjá þig afsanna helstu hagfræðistofnanir í heiminum. Þú mátt segjast þekkja eins marga tónlistamenn eins og þú vilt en það breitir því ekki að kaupmáttur er miklu meiri í USA en hér og því hafa tónlistarmenn það almennt betra þar en hér. Hvar svo sem auður safnast þá skiptir það ekki máli því allir menn sem eiga peninga reyna að ávaxta þá og það er gert með þvi að setja þá í fyritæki sem...

Re: Hvar eru peningarnir þínir?

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég skil vel að þú viljir ekki þurfa að horfa upp á menn betla úti á götum hér á Íslandi. En um leið og þú vilt að við gerum eitthvað til að stöðva það ertu að byðja fólk að setja sína peninga til að koma í veg fyrir það. Í raun ertu ekki að byðja heldur segja fólki að gera eitthvað þvi það er þitt sjónarmið á lífinu að það eigi að vera svona en ekki hinsegin. Ég er ekki að segja að þín skoðun sé ekki rétt ég vil bara ekki þurfa að borga fyrir hana nema á mínum forsendum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok