Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég held ekki upp á hana og mér er sjálfum nokkuð sama hvað hún er að gera. En að vera svekja sig út í hana er tímaeyðsla. En svo ég noti þín eigin orð: Orðið svekktur yfir því að hún hefði notað skoðanir fólks til að koma sér á framfæri" M.ö.o ertu svektur Ég var einfaldlega að setja þig í einn flokkinn

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Djöfull ertu svektur maður, þetta er grín og það tekur þessu eflaust enginn öðruvís, nema kanski þú. En þessi skítamenning sem þú heldur upp á er engu betri.

Re: Múhameðsmyndamálið

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Mér heyrist á öllu að þú sért ein mesta hryðjuverkasleikja sem um getur. Hvernig stendur á því að menn taka upp hanskan fyrir hryðjuverkasamtök? Hamas eru hryðjuverkasamtök, það er alveg sama hvernig þú vilt lýta á það þetta eru hryðjuverkasamtök. Það afsakar ekki flokkinn á að hluti hans sé bara í þessu en hinn hlutinn sé svo “góður”. Þú ert að ganga út frá því að lýðræði sé svo merkilegt að við verðum að viðurkenna allt sem kemur frá því. Hvað ef það yrði kosið um það að í Íran að um leið...

Re: :)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hún er ekki nákvæmari og þú lærir ekki að taka höggþungan af henni, einföld eðlisfræði. Þú getur eflaust vanist honum en ég var allur marinn á öxlinni eftir að hafa notað hana. Ég legg til að menn sem hafa bara prófað þessi vopn í tölvuleikjum en ekki í raunveruleikanum ættu ekki að vera að tjá sig sem einhverjir pró í þessum efnum.

Re: :)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú ert að vitna í tölvuleik og ég er viss um að þú hafir bara notað vopnið þar. Ég hef prófað vopnið í alvuru, M16 er bara miklu betri auk þess er ekki verið að nota sömu útgáfu og var í vietnam enn.

Re: :)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég veit það nú ekki, M16 er miklu nákvæmari og það er töluvert auðveldara að skjóta úr honum. Ég hef nú reyndar bara prófa AK 101 og hún var frekar ónákvæm, hávær og maður verður drullu þreittur eftir að hafa skotið úr henni. Það er eins og að glíma við 140 kg rússneska babúsku. En M16 var handhæg, hljóðlátari, nákvæmari og auðveldari í notkun, auk þess miklu þægilegri.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Stjórnmálaumræða væri ómöguleg ef leitast ætti við skoðanir allra sem teljast til ákveðinna flokka eða félaga. Það þarf ekki annað en að lesa ræður af alþingi til að sjá hver venjan er í þessum málum. Hvernig heldurur að það væri að lesa greinar þar sem sífelt er verið að minnast á að sumir þessir en ekki allir eru þessarar skoðunar og enn aðrir eru með aðeins auðruvísi skoðun en samt í sama félaginu.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Oftast er nú talað um flokka eða félög en ekki forustuna.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það má vel vera en vandamálið er að femenismi er ekki byggður á hugmyndafræði því er erfitt að átta sig á skoðunum þeirra í einstökum málum. Því verður maður að leita til þess sem forustan segir. Mig langar samt að koma einu að, þegar ég skrifaði greinina var hugmyndin að skella inn einni sprengju og hræra aðeins í flestum vinstrimönnunum hér. Það sem hefur komið mér á óvart er að það hefur ekki verið mikill ágreiningur um greinina sjálfa meira bara tuð um einhver tæknileg atriði hvort allir...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Nei en það er ekki til yfirlýsing frá framsóknarflokknum að vilja halda í styrktarkerfið í landbúnaðinum þrátt fyrir það hefur hann verið gagnrýndur fyrir það því forustuamaður þeirra í þeim málum Guðni (rolla) hefur oft haldið uppi rökum um að halda í gamla kerfið. Ég á ekki að þurfa að ganga á alla meðlimi framsóknarflokksins áður en ég gagnrýni þá fyrir heimskulegt kerfi.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ef menn þurfa að fara að kynna sér soðanir allra í félögum þá er ómögulegt að fjalla um þau. Hverngi væri umræða um stjórnmálaflokka, það myndi aldrei heyrast orð um Sjálfstæðisflokkinn því hann er það fjölmennur og ýmsar skoðanir innan hans. Forusta femensista setur línuna og þetta eru þeirra orð sem ég er að gagnrýna. Það má vel vera að einhverrir femenistar séu á annari skoðun en þá er bara að koma henni á framfæri. Ég fylgist mikið með stjórnmálum og umræðu um hana og enn hef ég ekki...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Femenistar eru flestir í femenistafélaginu og þeirra skoðanir hafa víða komið fram í þessum málum sov sem í spjallþáttum og blaðagreinum. Ég get ekki farið að gagnrýnt hverja og einustu fyrir sig ekki frekar en ég þyrfti að nafngreina alla í krossinum sem eru gegn samkynhneigð. Femenistar eru í félagi saman og yfirlýsingar þeirra dæmist á þær. Það greinarmunur á að gagnrýna félög og svo heilu löndin.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta snýst ekkert um að standa með einum aðila fremur en öðrum. Að dæma heilu þjóðirnar eins og fótboltalið er heimskulegt en umræðan hér hefur verið nokkuð á þá leið að Ísraelar séu slæmir og það má vel vera að eitthvað af því sem þeir hafa gert sé slæmt en það afsakar ekki sjálfsmorðsárásir og hvað þá að Íslendingar séu að taka undir það.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta er nú samt það sem maður heyrir og les frá ykkur og ef það fer í taugarnar á ykkur komið þá öðrum sjónarmiðum á framfæri en ekki væla í þeim sem gagnrýna ykkur. Það þýðir ekkert að koma eftir á og segjast ekki vera með hinar og þessar skoðanir en síðan aldrei láta raunverulegar skoðanir sýnar í ljós.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Nei það vill svo til að það er nokkuð virk stjórnmálaumræða í háskólanum. Það eru reglulega fundir hjá ýmsum deildum um flest það sem varðar alþjóðamál og almennt um stjórnmál. Fyrir þá sem hafa gaman af stjórnmálum og fylgjast vel með fara skoðanir ákveðinna samtaka ekki fram hjá neinum. En svona til gamans að geta þá hef ég setið á kaffistofufundi með formanni(stýru) femmenistafélagsins og afstaða hennar var nokkuð ljós.

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú ert að tjá þig um hluti sem þú veist greinilega ekkert um og ásakar svo fólk um sandkassaleiki þegar það gerir kröfur um einhverja heilastarfsemi hjá þér. Hvað svo sem þú telur þig hafa afrekað kemur málinu bara ekkert við. Þú setur fram fullyrðingu sem þú getur svo ekki staðið við. Að henda fram einhverjum fullyrðingum án þess að vita nokkuð um þær er vottur um barnaskap.

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þetta er heimskuleg rök og ef við ætlum að notast við þau gætum við allt eins farið 100.000 ár aftur í tíman og rakið sögu Homo sapiens, kæmumst þá eflaust að því að hægt væri að rekja allt til Bushmen í suðut afríku. Sættu þig bara við það iðnbyltingin byrjar í Bretlandi og sama hversu langt þú vilt hrekja það þá verður hún ekki eignuð neinum öðrum. Vísinda og tækni þróun er bara mest á vesturlöndum og Bandaríkin eru þar fremst í farabroddi.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú átt ekki að borga fyrir heilsugæslu annara og þú átt ekki að borga fyrir eitthvað sem þú notar ekki. Það er undir þér komið hvort þú hjálpar manni sem verið er að lemja og kemur samfélaginu ekkert við. Þitt siðferðismat verður að kljást við það hvot þú vilt hjálpa eða ekki. Nám er fjárfesting en það eru líka bankar afhverju er ríkið ekki að fjárfesta í bönkum? eða reka leigubíla, dagblöð, flugfélög o.f.l. Skattar eru ekki sjálfsagður hlutur, það er ekkert eðlilegt við það að 3. aðili komi...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég er í háskólanámi og ég er fara út í doctornám og ég mun ekki snúa heim eftir það svo ég er ekki að fara að borga fyrir mitt nám. Það er auðvitað sanngjarnast að fólk í háskólanámi borgi fyrir sig sjálft. Nám er fjárfesting sama hvernig á það er litið hvort heldur sem það er hugsað í peningum eða skemmtuninni á bakvið fagið. Þessi rök að börn verði ein daginn skattgreiðendur eru hæpin. Ég meina lítum við á samfélagið sem hóp skattgreiðenda eða viljum við kannski líta á það sem einstaklinga...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég þarf nú engar rannsóknir til að komast að þvi hvar flestir femmenistar standa í málefnum mið-austurlanda. Það vill svo vel til að ég hef setið á fundum með þeim um þessi mál í háskólanum og afstaða þeirra er skýr. Hvað varðar fæðingarorlofið þá vakti það fyrir þeim að þarna væri verið að rétta stöðu kvenna ekki karla þar sem mörg fyrirtæki hafa gengið fram hjá konum vegna hættunar á barneignum. Annars er fæðingarorlof slæmur hlutur sem ég þarf að borga fyrir með mínum skattpeningum. Fólk...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég skrifa bara um það sem ég les og heyri frá vinstrimönnum. Ef þið eruð ósammála ykkar forustu þá er bara að láta það í ljós eða skipta um forustu.

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Til að byrja með þá sagði ég að: “er oft hin svo kölluð 50% reglan” ekki alltaf. Þegar ég tala um femmenista þá er ég að tala um þær sem eru í femmenistafélaginu ég vil ekki móðga konur sem berjast fyrir raunverulegu jafnrétti og kalla þær femmenista. Það skal líka tekið fram að í dag er nánast 100% jafnrétti þar sem konur og karlar eru jafnir fyrir lögum því er þátt stjórnvalda lokið. Það sem þú ert að tala um er hugarfarsbreiting það er bara eitthvað sem kemur með tímanum og ekki að neyða...

Re: Kvennalistakonur með slæðu

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þessi svo kölluðu kvennastörf þurfa ekki að var svona illa borguð. Ef leikskólar mættu rukka fyrir þá þjónustu sem þeir veita þá fengju fóstrur hærri laun. Það má vel vera að það komi sér illa fyrir einhverjar fjölskyldur en þetta er hluti af því að eignast börn maður verður að velja og hafna. Umræðan snýst alltaf um fólki sem á börnin og þeirra vandamál en hvað með mann eins og mig sem á enginn börn og er bara í námi, afhverju á ég að borga fyrir börn annar. Barnafólk er ekki að eignast...

Re: :)

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Miða við vopnið þá er hann eflaust pólskur eða frá tékklandi

Re: Kosningasigur Hamas og friðarhorfur

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þú ert greinilega ekki vel lesin í heimspeki því ef þú værir það myndiru ekki tala um siðferðis afrek. Það er erfitt að átta sig á því hvað þú átt við með andleg ef þú átt við trúarlega þá er mér nokkuð sama hver hefur verið þar í farabroddi enda trúarbrögð ómerkileg. Áttaðu þig á því að trúarbrögð ætlast til þess af okkur að trúa einhverju í blindni, engin rökhugsun né skynsem á bakvið þau. Ég myndi samt tala um andleg afrek að eiga góða rithöfunda og það eiga Bandaríkjamenn nó af, hvað...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok