Ég er undrandi að það sé ekki komin grein um þetta hita mál hér og því tek ég það bara að mér. Það getur vel verið að Jyllandsposten hafi verið að ögra með því að byrta þessar myndir, en hvað með það ? Það er reglulega búið að ögra Kristnum og sem dæmi er sífellt verið að skíta Kanana út en þeir eru bara vanir því og taka því, á að passa endalaust upp á að móðga ekki múslíma ?

Svo er málið að Danskir múslímar eru ekki beint að launa “ofeldið”, þeir eru búnir að vera að hita undir þessu máli og nú er það orðið svo stórt að þeir vilja loka því að það er að “endurkastast” á þá og ekki til að bæta stöðu þeirra í Danmörku.

Palestínumenn eru annar hópur sem er sjálfum sér verstur í þessu máli, með öfgamennina í Hamas við stjórn eru þeir einangraðir og í peningavandræðum, ekki beint líklegt að EU sendi þeim peninga á meðan þeir hóta Evrópskum borgurum lífláti. Málstaður þeirra hefur verið studdur í Skandinavíu og margir þaðan unnið þar (meðal annars heimskir krakkar héðan) en nú þora fáir Evrópubúar að láta sjá sig þarna, flýja nú í skjól til vondu kallanna í Ísrael !

Hér heima er ég ekki sáttur við ummæli forystumanns samtaka múslíma, hann tekur þátt í Danska “boycottinu” og ber um leið blak af hryðjuverkasamtökum Hamas, og svo vilja þeir fá að byggja mosku og “færðslumiðstöð”. Ég er ekki heldur ánægður með Moggan eða NFS, ég held að þeir séu einfaldlega hræddir aumingjar, af hverju sinna þeir ekki upplýsingaskyldu með því að sýna þessar myndir, ég hef ekki séð þær enn af neinu viti. Sigmundur Ernir segir ekki ástæðu til að sýna særandi myndir, honum fannst ærin ástæða til að sýna í sibylju myndir í DV af harðræði Ísrelskra hermanna gegn Palestínumönnum, myndir sem síðar kom í ljós að voru falsaðar ! Nú lætur hann kúga sig.

Því miður virðast Bretar líka vera að láta kúga sig, hvenær hikaði Breska pressan við að hneysla e.h. ? Aldrei fyrr en nú af einskærri hræðslu, ekki af ástæðulausu því að í dag var öfgamönnum múslíma leyft að æsa múginn til morða á saklausu fólki, þetta hálfu ári eftir sprengjuárásir múslímskra öfgamann í London ! Það er komið skelfilega fyrir Bretum, Churchill sem varaði við þessu fyrir löngu snýr sér í gröfinni.

Hafa múslímar sýnt Kristni virðingu ? Af hverju er eina kirkjan í Saudi Arabíu brunnar rústir ? Af hverju má ekki halda Kristna messu þar ? Af hverju er allt með krossmerki bannað í landinu ? Íslenskar flugvélar sem fljúga þangað mega ekki vera með Íslenska fánamerkið málað á eins og venjan er, hver er að móðga hvern ?

Hér að lokum er linkur með góðum greinum eftir hann Hjört sem ég held að hafi tjáð sig hér;

http://www.brusselsjournal.com/blog/47


Og munið að versla Danskt og drekka bjórinn þeirra (auðvelt framleiddur líka hér) og sýna þeim þannig stuðning okkar og fyrir frelsinu !