Þeir sem fylgjast með Hundaáhugamálin hafa tekið eftir því að ég hef 2x skrifað um hana Flugu mína…. En ég hef ekki skemmtilegar sögur af segja henni núna því að á síðasta laugardag var ég í útreiðartúr og það var keyrt yfir hana. Hún var mikið slösuð og það þurfti að aflífa hana. Við grófum hana í dag í hesthúshlöðunni, en þar lék hún sér mikið. Við lögðum hana fallega til og strukum hana yfir með tusku, vöfðum hana inn í teppið sitt og með fylgdi uppáhalds dótið hennar. Gröfin er í einu...