Ég á 14 ára gamlan kött sem heitir Dúlla.
Þegar ég bjó í Rvk fórum ég með fjölskylduni á þjóðhátíð í 2 daga og ákváðum bara að hafa nóg mat hjá kettinum og fá nágrannan til að hleypa henni inn og út. Svo þegar við komum heim þá var hún ekki heima…hún hafði farið að leita af okkur. Eftir tvær vikur var hringt í okkur og þá hafði hún fundist rétt hjá perlunni en við bjuggum í nóatúninu. Hún hafði gert sig heimakomna hjá konu en hún var rosalgea glöð að sjá okkur…svo núna er hún orðin gömul kona sem veit ekkert betra en að kúra hjá manni og láta klappa sér!

Zelda