Þeir sem fylgjast með Hundaáhugamálin hafa tekið eftir því að ég hef 2x skrifað um hana Flugu mína….

En ég hef ekki skemmtilegar sögur af segja henni núna því að á síðasta laugardag var ég í útreiðartúr og það var keyrt yfir hana.
Hún var mikið slösuð og það þurfti að aflífa hana. Við grófum hana í dag í hesthúshlöðunni, en þar lék hún sér mikið. Við lögðum hana fallega til og strukum hana yfir með tusku, vöfðum hana inn í teppið sitt og með fylgdi uppáhalds dótið hennar.
Gröfin er í einu horninu í hlöðunni og þer ofan á er lítillog einfaldur kross.


Dýr verða oftar en ekki hluti af fjölskyldunni og þó að ég hafi aðeins haft þau forréttindi að hafa Flugu á heimili í rúmt hálft ár var hún orðin ein af fjölskyldunni og verður hennar sárt saknað.

Zelda