Jah, þá er þessi maraþonlesning búin. Byrjaði á aðfangadag, búinn klukkan sex um morguninn á annan í jólum. Þ.e. fyrstu tvær bækurnar af sex (eða sjö ef þú tekur Appendices með). Maður hafði alltaf ætlað sér að lesa söguna en aldrei komið sér í það. En hins vegar á aðfangadag var ég svo heppinn að fá bækurnar lánaðar hjá vini mínum og ákvað bara að ég skyldi vera búinn að lesa þær fyrir sýninguna sem við ætluðum á, eða klukkan átta á annan í jólum. Það tókst. Mér fannst bókin frábær, þó...