Slipknot. Er enginn nema ég að sjá hversu fáránlegt þetta er?
Gaurar sem eru með einhverjar fáránlegar grímur og með brjálaða sviðsframkomu, en ekki mikla “tónlist”.
Þetta með að fela hversu léleg eða lítil tónlistin sjálf er með því að annaðhvort hneyksla alla nógu andskoti mikið eða vera ótrúlega mysterious er virkilega gamalt bragð en það virðist samt enginn vera að fatta þetta.

Og fyrir þá sem brjálast núna og eru með eitthvað hnyttið tilsvar í huga vil ég biðja þá að svara einni spurningu fyrir mig:
“Heldur þú, Slipknot fan góður sem ert í þann mund að ausa skít yfir mig, að Slipknot hefðu einhverntímann orðið frægir ef þeir væru EKKI með grímur, gengu undir VENJULEGUM nöfnum og væru með svona nokkuð ”eðlilega" sviðsframkomu?

Bara smá pæling, endilega drullið yfir mig ef þið viljið