Neinei, ég skal ekkert vera að íþyngja þér með einhverjum nánari útskýringum. Það myndi bara taka dýrmætan tíma frá þér sem gæti annars farið í að lesa bæklinga um framhaldsskóla og ráðleggja öðrum varðandi val á framhaldsnámi (sem þú hefur jú ansi ítarlega vitneskju um, eftir alla bæklingana). Zedlic
Lestu það sem ég skrifaði. Ég var ekki að efast um hversu margir úr ólympíuliðinu í stærðfræði væru úr MR, ég benti bara á að akkúrat önnur saga er með ólympíuliðið í eðlisfræði, 4 af 5 úr MA þar. Zedlic
Fantasia: “Ég býst við því að orðið vísindamaður sé verið að vísa til eðlisfræði 1, en þar eru nú flestir ”vísindamenn“ landsins saman komnir. Allir í ólympíuliðinu í stærðfræði nema EINN eru úr eðlisfræði 1, annað hvort í 5. eða 6. bekk.” Fyrst þú ákvaðst að opna þessar dyr þá vil ég benda þér á að 4 af þeim 5 sem kepptu fyrir Íslands hönd á ólympíuleikunum í eðlisfræði í S-Kóreu eru einmitt úr einum og sama bekknum í MA. Heitir þessi “erfiðasta braut landsins” ekki “Eðlisfræði I”? Zedlic
Erfiðasta brautin á landinu my ass. Ég hvet hvern þann sem heldur því fram að kíkja á eðlisfræðilínuna í MA. Er ekki að halda því fram að hún sé endilega erfiðust (langar ekki í neitt pissing contest hérna) en ég veit að hún er a.m.k. nógu erfið til að það sé ekki hægt að halda því fram að einhver ein braut í einum skóla sé erfiðust. Zedlic
Ég vil benda áhugasömum á að viðkomandi grein eftir mig er tæplega þriggja ára gömul og endurspeglar ekki endilega stjórnmálaskoðanir mínar í dag. Að sjálfsögðu mega allir samt svara henni eins og þeir vilja. Zedlic
Jaaá, ég skil þig núna. “Endilega fylgist með á NEMENDUR.NET” þýðir s.s. “Endilega farið á NEMENDUR.NET, borgið fyrir skráningu þar og fylgist með”? Zedlic
salvar@gmail.com</
Ahh… þessir listar. Gaman að þeim. Nei. Nú bíð ég bara eftir “50 bestu gítargrip rokksögunnar!” eða “100 flottustu orðin í lagatextum tónlistarsögunnar!” Zedlic
Ja, eins góð leitarvél og google er þá finnur hún (ennþá) aðeins hluti sem eru eða hafa einhverntíman verið á netinu. Ég er að leita að fólki sem þekkir fólk sem var í hljómsveitinni, eða eitthvað slíkt. Zedlic
salvar@gmail.com</
Auðvitað gleymdi ég að minnast á að hljómsveitin er íslensk. Og já, þetta lag er hvorugt laganna sem finna má á rokk.is Zedlic
salvar@gmail.com</
Skiptir ekki máli hvernig lyklaborðin eru, ef þú kannt fingrasetningu ertu hvort eð er ekkert að horfa á takkana þegar þú skrifar. Stillir bara á íslensku í keyboard settings í Windows og skrifar án þess að horfa á lyklaborðið allan tímann. Zedlic
Hmmm… en varla tékka þeir á því hvort að þessi ákveðni maður hafi þetta heimili sem lögheimili? Var nefnilega að pæla í að sækja nokkrum sinnum um bara með mism. nöfn á mism. heimilisföngum. Zedlic
salvar@gmail.com</
Ætli það sé ekki sölumannsbragurinn sem er á honum… hljómar eins og sjónvarpsmarkaðurinn. Zedlic
salvar@gmail.com</
Ég tengdi accountinn bara við Svarta Kortið mitt, þarf þannig ekki að leggja neitt inn á PayPal reikninginn. Varðandi öryggi þá hefur þetta alltaf virkað fínt hjá mér. Zedlic
salvar@gmail.com</
Þetta er því miður ekki svona einfalt. Sem dæmi þá er IE closed-source á meðan Firefox er open-source. Það þýðir að ef einhver öryggishola uppgötvast í hvorum browser fyrir sig þá verður hún löguð í IE þegar Microsoft ákveður að þeir hafi tíma og peninga og nennu til að laga þetta á meðan Firefox er uppfærður um leið og einhver nörd einhverstaðar í heiminum ákveður að laga þessa holu og senda inn lausnina sína. Giskaðu fyrir mig hvor uppfærslan verður fyrr á ferðinni. Zedlic
<a...
Frábær grein, 5/5. Þessi greinasamkeppni hefur fengið mig til að lesa vandlega hverja einustu grein sem hefur borist þessu áhugamáli síðan hún var sett, vel af sér vikið. Zedlic
3/5 frá mér, vel uppsett, gott málfar, lítið innihald. Btw, þessi greinasamkeppni er frábær hugmynd, sérstaklega að láta lesendur gefa einkunn. Lætur lesandanum finnast hann mikilvægari en ella. Zedlic
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..