Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zazou
zazou Notandi frá fornöld 52 ára karlmaður
294 stig

Re: Innflutningur á fornbíl

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jahh Eggzelinn minn segir að 1,13*1,245 sé 1,40685. Tek hann bara á útkomunni, svo helv langt síðan hugarreikningurinn var uppá sitt besta ;-)

Re: Innflutningur á fornbíl

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sigh! 1.4* í stað 2* verð, URGH!

Re: Stuff of legends! Group B rallý bílarnir...

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Áhugaverð grein sem veitir innsýn í períódu akstursíþróttanna. Sannarlega áhugavekjandi!

Re: Vantar Escort RS Turbo, 16V Clio....

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hef séð rauðan RS Turbo standa við Grensásveg, sá er amk fjarskafallegur.

Re: MMC Starion turbo 1987

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það var æðislegt að drifta á þessu í vætu. Þetta er þó svoddan sleggja, 1400kg+.

Re: Verðgildi bíla

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það eru almennar forsendur og svo geta umboð ef þau kæra sig um sett inn sínar eigin forsendur. Það sem Toyota ákveður að gera með Hyundai kemur ekki fram á bgs.is heldur sérð þú það sem B&L hefur sett inn. Toyota getur ákveðið að nota forsendur B&L eða ekki. Það kemur einungis fram farir þú með Hyundai-inn þinn og ætlir að setja hann uppí hjá þeim. Svo er líka ákveðið spread á því hvort er verið að taka bílinn uppí eða selja hann. Einnig er verðlagningin þrepaðri heldur en í Bíló forritinu...

Re: MMC Starion turbo 1987

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þú getur líka leitað á google eftir Conquest TSI, Ameríkunafnið.

Re: Verðgildi bíla

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta er útreikningur eftir forsendum sem bifreiðaumboðin gefa sér. Kerfið var skrifað í samvinnu við umboðin og útreikningarnir frá þeim komnir.

Re: MMC Starion turbo 1987

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það virðist koma reglulega inn fyrirspurn um þessa bíla hérna, ég ráðlegg þér að framkvæma leit eftir Starion og skoða úrtakið. Það voru að því best ég veit 2 týpur, 2.0 turbo (mjóa evróputýpan) og 2.4 turbo intercooler (ameríkutýpa með brettaútvíkkunum). Ég átti svona 2.4 bíl sem var '86 módel. Þetta eru orðnir gamlir bílar og eintakið segir meira en eitthvað meðaltal bilana. Minn bíll drakk nokkuð stíft, 14+ ef ég man rétt. Gott ef 2.0 mótorinn var ekki kraftmeiri en stóribróðir, minn var...

Re: Flame CUPE

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvers konar bíll er þetta eiginlega? Flame?

Re: þarf smá hjálp!

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Twincam/DOHC var voða flott hérna fyrir ca 10-15 árum. Verð að skjóta því að að XK 6 cyl vélin í Jaguar (notuð fram til '87) er DOHC. Hún var hönnuð uppúr 1940! :-Þ

Re: Hvernig eru men að fúla Scoda Octavia RS

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst nú bara skítafýla af þessum þræði!

Re: Rice, rice, baby...

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gargandi :-D

Re: Hvað kosta flækjur o.þ.h.?

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ætli meistari Einar Áttavillti smíði ekki flækjur fyrir þig á verðbilinu 30-50k. Fer eftir hvort þú takir 4-2-1 eða 4-1. Flækjurnar sem hann setti í VTEC bíl sem ég átti skiluðu svo sannarlega sínu. Green loftsían jók bara hljóðið, ekki finnanlegur munur. En með þessu hvorutveggja í þá fór bíllinn 18 km hraðar (gef ekki upp hve…) þegar ég prófaði ;-) Svo er spurning hvort það sé hægt að smella nýjum tölvukubbi í, hef heyrt menn mjög ánægða með slíkt en á móti kemur hugsanlega meiri...

Re: Kvartmíla Laugardaginn 28.6.03 Flokkur fyrir 2000cc og minna

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Klukkan hvað???

Re: Rockford forsgate spilari til sölu

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ok, en mig langar enn að vita hvað er á bakvið 87þ kall fyrir svona júnit! Vaskar það upp líka?

Re: Rockford forsgate spilari til sölu

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hann var nú á tilboði hjá Aukarafi fram í maí á 37þ. En 87þ.!!! Drekka þessir menn brennivín í hvert mál?

Re: Bílþrif

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég lenti í svipuðu þegar ég ákvað að tékka á verðum hjá ónefndri bónstöð í Borgartúni. Augun í guttanum sýndu bókstaflega dollaramerki og ég forðaði mér áður en hann var kominn yfir 10k. Ég meina þeir eru með menn á lágmarkslaunum við þetta! Sé fyrirtækið sæmilega vel rekið þurfa ekki að koma dauðir tímar sem sá óheppni kúnni sem villist þó inn er látinn borga fyrir.

Re: Könnunin!

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
bebecar? Þú meinar væntanlega bebcar ;-) Einhver innanbúðarrígur?

Re: Austin mini

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Notandi gdawg á svona míní og er mikið mínífrík, spjallaðu við hann.

Re: Honda civic vti /Nissan Almera gti

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ef þú ert góður dræver þá nærðu meiru afli útúr Civicnum. Ég spyrnti eitt sinn við bíl með þessari vél þegar ég átti VTi og snýtt'onum! Guttinn var búinn að vera að atast í mér en ég var ekkert að svara honum fyrr en mín vél var orðin heit. Svo er Civic-inn mikið fallegri, verst bara með ímyndina.

Re: BMW M5 1995 3,6ltr

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hljómar eins og dónaskapur, M-tjúning ætti að nægja ;-)

Re: Til sölu Peugeot 406 1.8i

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þetta hljómar eins og auglýsing frá BT, ódýrara að taka lánið ;-)

Re: hvernig getur madur minnkad eydsluna

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Svo er til eitthvað fyrirbæri sem heitir Ecotec og ég ætla að prófa sjálfur: http://www.koggull.is/tech/ecotek_cb_26p.htm Hefur einhver reynslu af svona græju?

Re: Eftir hverju ferðu þegar þú velur þér bíl?

í Bílar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Útlit, kraftur!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok