Þegar ég vel mér bíl reyni ég að vega og meta marga mismunandi þætti.

Bíllinn þarf að vera sæmilega stór, þannig að hann rúmi 4 fullorðna og einhvern farangur. Ekki er verra að hann sé með krók til að ég komi kerrunni á ef ég þarf að flytja eitthvað dót. Því þarf hann einnig að vera sæmilega kraftmikill og lögunin þarf að vera sportleg til að hann liggi vel og sé með sæmilega lágan vindstuðul á vegum úti.

Ekki er verra að það séu góðar græjur í bílnum og þægindi eins og toplúga, leðursæti og cruise-control. Síðan reyni ég að vera á frekar nýlegum bíl, þ.e. lítið eknum.

Niðurstaða. Í þessari könnun er aðeins einn svarmöguleiki en þegar maður velur sér bíl vegur maður og metur marga mismunandi þætti og reynir að fá það mesta fyrir peninginn.

Dune<br><br>———————————–
clean desk is a sign of a sick mind
———————————–