Ég er búin að vera að pæla mikið í Austin mini bílum síðast liðin 3 ár. Þá allt í einu sá ég gersemina á bílastæði og það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. Það mætti líka kalla þetta ÁSTIN MÍN!

Allavegana, ég er mjög heit fyrir gömlu týpunni og veit ekki um marga sem eiga gripinn. Hafið þið heyrt eitthvað gott/vont um bílinn. Vitiði á hvaða verðbili þeir eru? Endilega segið mér allt sem þið vitið ;)

PS. er nefninlega að spá í að kaupa einn rauðan með breska fánanum en veit ekki hvað ég á að bjóða í hann.