Til allra þeirra sem geta gengið á háum hælum:

Hvernig farið þið að þessu?
Já ég er stelpa en ég bara fatta ekki trikkið við þetta.
Fólk seigir að þetta æfist en það hefur því miður ekki gengið þannig. Sama hversu lengi ég geng á þessu helv.. háhælaða drasli þá geng ég alltaf eins og ég sé að reyna að stappa niður löppunum af bræði eða reyna að drepa eitthvað á götunni.
Sem betur fer eru til æðislega flottir óháhælaðir skór sem ég get trampað á.
En það væri samt gaman að geta gengið á háum hælum.. Einhver ráð?


Bætt við 15. júní 2009 - 01:45
Takk fyrir öll ráðin elsku hælafagmenn :D