Ég tók prófið mitt í sumar. Ég fékk mjög hressan og skemmtilegan prófdómara, sem að mínu mati er mjög mikilvægt því það stressar mann bara upp að fá stífan og fýldan karl með sér. Ég var ekki spurð neitt út í vélina, ekki einu sinni hvernig bensínið væri á litin. Þetta var bara eins og að fara í flug með vini mínum, nema hann bað um að ég gerði ákveðna hluti. Ég viðurkenni að ég var mjög stressuð fyrir þessu prófi, þó svo að ég vissi að ég kynni allar æfingar og ætti að geta svarað flest...