Málið er að ég er með helling af rauðum bólum á enninu og alveg verulega mikið af fílapenslum á nefinu og ég er orðinn frekar pirraður að þetta skuli ekki fara.
Ég nota Oxy Face Wash á morgnana og á kvöldin. Svo hef ég notað Oxy Face Scrub 1. til 2. í viku.
Ég borða aðallega hollan mat, borða ekki nammi og drekk mikið vatn. Reyni að koma sem minnst við andlitið á mér á daginn til að halda því hreinu.
Samt er ég að fá bólur!
Einhver ráð?