Las Vetrareld þegar hún kom út og var mjög hrifin af henni þá, kannski ekki síst af því hún fjallar um ballerínu og Friðrik var mikið í balletskólanum sem ég var þá við nám í á meðan hann var að skrifa bókina og ég kannaðist vel við marga punkta sem fram komu í bókinni hans. En sagan sjálf og ekki síst hvernig hún er skrifuð hreif mig en einhverra hluta vegna hef ég ekki lesið meira eftir hann (fyrir utan Benjamín dúfu). Ætti kannski að kíkja í Góða ferð, Sveinn Ólafsson fyrst þú mælir með henni.