Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

viceroy
viceroy Notandi frá fornöld 378 stig

Re: Tabs

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ok btw með slide playing þá þarf ekkert að gera hratt eða fast, alls ekki fast. Fer bara eftir því hvort þú vilt hægt afslappað slide eða hratt aggresíft slide… Í rauninni engin ein leið til að spila slide guitar… Í flestum tilvikum er gítarinn stilltur í opinn hljóm, þ.e.a.s. að allir strengirnir eru stilltir t.d. þannig að ef þú slærð á alla strengi, opna strengi (notar ekkert vinstri höndina) þá færðu til dæmis G hljóm í staðinn fyrir EADGBE… ViceRoy

Re: Tabs

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 2 mánuðum
TAB kerfið er alveg ágætt, en hins vegar verður fólk að átta sig að það er alger nauðsyn að geta lesið nótur eða nótnagildi öllu heldur til þess að geta lesið TABs. Ástæðan fyrir því að ef þú kannt ekki nótnagildin þá þarf að hafa lagið til viðmiðunar til að heyra hvernig þetta á að sounda. Og ekki það, það er það sniðugasta sem fólk getur gert, er að læra nótur þar sem það gefur alveg vel meira en 100falt af sér en TAB “kunnátta” En góð grein í raun þar sem hún útskýrir ágætlega TAB hugtakið ViceRoy

Re: Eingan skatt fyrir 16 ára og yngri ofl.

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Af hverju stendur Engan skatt í titlinum á báðum hinum greinunum en Eingan skatt í titlinum á þessum? :D Hvernig er hægt að klúðra C/P?

Re: Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Af hverju í ósköpunum var þessu svari ekki eytt af stjórnanda?

Re: Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ekki man ég til þess að Írak hafi hótað Bandaríkjunum einu eða neinu… Bandaríkin komu með ásaknir um að Írak hefðu efnavopn sem var btw farið og leitað að og ekkert fannst…. Samt réðust Bandaríkin inn… Ég man t.d. lítið eftir um ræðum eða miklum fréttum af Hussein meðan Clinton sat í stól forseta Bandaríkjanna… Um leið og hitt Bush fíflið kemst til valda byrjar á þeirri sömu vitleysu og pabbi sinn. S.W.A.T. er 5-6 manna sveit… Hussein átti 9 hallir og var víst með allnokkra tvífara í vinnu...

Re: Saddam Hussein

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jesús… annar er 15 og hinn 18 og ég sé orðið lítinn þroskamun á ykkur báðum í svörum… báðir með svör uppá 12 ára aldur. tsk tsk tsk

Re: Frank Zappa, Steve Vai og Terry Bozzio

í Rokk fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Góð grein, :D en vil bara benda á…. EVH er skammstöfunin eingöngu á gítarleikara VH, þar sem hún hét víst Van Halen en ekki Eddie (Né Edward) Van Halen ;) ViceRoy

Re: Pirraður

í Tilveran fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Má ég benda á að múslimar eru miklu strangtrúaðri ekki bara vegna þess að þeir vilja það heldur eru það einfaldlega lög í flestum löndunum. Og ég man ekki betur en að þegar Mínus gaf út Jesús bolinn sinn þar sem hann var krossfestur á íslenska fánan hafi margir orðið alveg brjálaðir í þessu ókirkjurækna landi okkar? Þannig að bættu við svolítilli öfgatrú og landslögum sem skapa sínar reglur og lög eftir biblíunni (sem í þeirra trú er kóraninn) og þá hefurðu örugglega mjög svipuð viðbrögð ViceRoy

Re: Sögu VHS lokið

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Já og plús allar þær myndir sem verða EKKI endurútgefnar á DVD. Fullt af gullmolum sem leynast hér og þar sem hafa ekki orðið vinsælar eða er orðið erfitt að nálgast. Eins og t.d. UHF (The vidiot from outer space) og svo svona einstaka B myndir eins og eftir vitleysinginn hann Ed Wood? verður það örugglega endurútgefið eða verður því útrýmt á örfáum augnablikum?

Re: Sögu VHS lokið

í Kvikmyndir fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það er svo sem í lagi, en stærsti gallinn er hvað DVD er miklu miklu viðkvæmara heldur en VHS. Ein rispa getur eyðilaggt allt. Hey, ef spóla brotnaði og fólk kann að nota heila og hendur þá skiptir maður um cover fyrir spóluna, komin í lag. Og ef maður vill ekki eiga myndina lengur þá tekur maður yfir hana (Sem verður og er jú orðið hægt með DVD í dag). En upp á móti koma náttúrulega gæðin og það tel ég nokkuð mikinn plús.

Re: Tökum okkur á

í Tilveran fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Uhm, ég hef nú verið inná þessum vef í mörg ár… eða eiginlega síðan vefurinn byrjaði (eða svona næstum) og ég man bara eftir þessum vef akkúrat svona :D Hann hefur verið svona í nokkur ár og það er sennilegast ástæðan fyrir því að þeir tóku uppá að banna fólk, en samt breytist hann lítið. Tóku upp á því að búa til nöldurkork sem virkaði… í 1-2 mánuði :D enda fór sá korkur út í rugl stuttu eftir að hann varð til. Það má svo sem reyna, en ég man ekki eftir einhverri útópíuútgáfu af Huga :D

Re: Friends

í Tilveran fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Það þarf nú ekki að skoða lengra en stuðning USA á forsetanum til að sjá hvað þeir eru heimskir :D

Re: Er þetta lífið?

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Well, eins og sumir segja… Sá sem ekki reynir í hið minnsta að vera ánægður getur ekki lifað góðu lífi. Þetta er ekki heimspekileg spurning heldur einfaldlega sálfræðileg. Sá sem er neikvæður þarf að eyða tíma og púðri í að breyta viðhorfi sínu. Það gerist t.d. ekki með því að lesa bók eða horfa á mynd heldur með vinnu og það vinnu á sjálfum sér. Þannig að reyndar er spurningin er hins vegar, hvað ætlar maður að eyða lífi sínu í og hvað er maður tilbúinn til að sætta sig við þessa stundina?...

Re: Frjáls vilji?

í Heimspeki fyrir 20 árum, 2 mánuðum
(Endir hefur punktinn) Já, hvað kallarðu frjálsn vilja? Það sem þú myndir velja ef þú hefðir enga þekkingu og enga lífreynslu? Allt sem þú velur og allt sem þú kýst byggist einfaldlega á lífreynslu og þekkingu. Það flokkar okkur sem persónur. Þannig að frjáls vilji er ekki eitthvað hugtak eins og að þú takir eitthvað af því að ekkert segir þér að þetta sé betra en hitt, heldur að þú teljir þér trú um að eplið sé betra en appelsínan. Skiptir engu máli hvað þú velur, heldur að þú veljir það...

Re: DV gengur alltof langt í þetta skiptið!

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Sko Nr. 1 Hvað sannanir eru komnar fyrir því að hann hafi nauðgað þessum piltum? Nr. 2 DV eru ekki morðingjar, en hins vegar geta hafa átt stóran þátt í því að hafa komið því fyrir að maðurinn hafi einfaldlega ekki getað gert annað með myndbirtingu og birtingu nafns. Nr. 3 Hverjir vilja heyra svona lagað? Myndi nú telja þá sem vilja fá svona fréttir á hverjum degi nokkuð ruglað og jafnvel siðlaust fólk. Það er eitt þegar blað kemur með frétt um mann sem er, eins og svefnnauðgarinn, (sem...

Re: DV gengur alltof langt í þetta skiptið!

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Blóði? á húsið :D Það gerir lítið Blóð á húsið og egg í loftræstingarkerfi hússins sem og og lofinntök bíla þeirra sem starfa sem ritarar blaðsins (óþarfi að draga aðra starfsmenn í málið ( enda eru þeir bara að vinna sína vinnu(það eru fréttamenn DV sem eru verstir og ritsjóri)) Gerum eitthvað í málinu, egg á ritsjóra DV sem og fréttamenn þess. Látum þá aðila sem ekki snerta málið, vera. Þeir ráða engu. Efnum til mótmæla gegn þessum “hryðjuverkamönnum Íslands” Þeir eru að ganga of langt,...

Re: DV gengur alltof langt í þetta skiptið!

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég vil bara benda þér á að sama hvaða sögur og sannanir þú hefur undir höndum ( að þú þekkir strákana sem urður fyrir þessu eða í versta falli hefur orðið fyrir þessu sjálfur frá sama manni) þá er samt engan veginn hægt að dæma mann sem er verið að ákæra sekann fyrir dómi án laga og réttar. Ef segjum að faðir þinn eða bróðir (sem í þessu tilfelli er) sæti undir þessum ásökunum og það væri birt mynd af honum eða enn verr að sjálfum þér þá efast ég um að þú værir undirbúinn að búin væri til...

Re: DV gengur alltof langt í þetta skiptið!

í Deiglan fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Vil benda þér á að í seinni hluta bréfsins gaf ég upp 3 ásæður og lestu greinina betur! ViceRoy

Re: Verð bara....

í Háhraði fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Verð að segja að hann hækkaði nokkuð í áliti hjá mér eftir að ég sá hann í “Who´s line is it anyway”, tókst bara nokkuð snilldarlega upp og þegar hann fuckaði upp þá fuckaði hann nokkuð skemmtilega upp, gerði líka endalaust grín að sjálfur sér í og að “Babewatch”. En þegar ég horfi á manninn í mynbandi, mynd eða þáttum þá liggur við maður annaðhvort hlægi sig máttlausan eða æli, fer eftir hvernig týpa fólk er :P ViceRoy

Re: Hver var ástralinn?

í Háhraði fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Bara svo þú fáir akkúrat svarið þótt svarið hafi verið “Jú þetta var Hugh Jackman” þá er það svo þú fattir örugglega, “Jú þetta var ”dúddinn“ sem lék Wolverine” ViecRoy

Re: Ekki reykja og dæla bensíni???

í Háhraði fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Hehe takk Ætlaði einmitt að svara korknum sjálfur :D en gerði óvart nýjan í staðinn :P Langt síðan ég hef sent eitthvað inná huga og greinilegt að ég hef gleymt miklu :P ViceRoy

Re: myndin af pabba,saga Telmu

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Það er nú alveg rétt hjá þér… En svona mál vekja upp mikla reiði að oft kviknar upp eitthvað í manni sem vanalega er ekki til staðar, en þetta er svo sem auðvitað rétt svar enda er þetta mjög viðkæmt og svakalegt mál. En auðvitað þarf að ráðast á rætur málsins en oft er það bara einfaldlega alltof seint og eitt eða fleiri líf ónýt vegna ofbeldishneigðar. Það hefur til dæmis komið í ljós að þetta sé ofbeldishneigð en ekki beint kynhneigð. Ofbeldishneigð stafar til dæmis oft af...

Re: myndin af pabba,saga Telmu

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ég segi þetta ekki oft en ég segi það nú Jesús! Þetta er viðbjóðslegt mál! Ég segi bara eitt… ef þetta væri bróðir minn sem gerði svona þá færi fyrir honum eins og fór fyrir einum í enda myndarinnar “Once Were Warriors”…. Ég myndi ganga frá helvítinu! Sama hvort fyrirgefning lægi fyrir eða ekki. Skil ekki hvernig svona menn svo og Steingrímur Njálsson eru enn lifandi! ViceRoy

Re: Silvía Nótt

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Sorry :) wrong window ViceRoy

Re: Silvía Nótt

í Tilveran fyrir 20 árum, 9 mánuðum
It´s Danke you moron :) ViceRoy
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok