Já, ég er búinn að prófa TV-TOOL, en það styður ekki NV17 kubbinn (GF4 MX). Og alls óvíst hvenær sá stuðningur er væntanlegur. Ég er búinn að taka fyrir að leikurinn sé í of hárri upplausn því það gefur auga leið að ef desktop er í 1024*768 með TV-OUT í lagi, þá hlýtur leikurinn að eiga að virka í sömu upplausn. :) Ég prófaði að keyra leikinn windowed og þá svínvirkar þetta, en ég myndi frekar vilja fá þetta til að virka á leikinn eins og ég keyri hann dagsdaglega.