Ég átti leið inn í Hátækni af illri nauðsyn fyrir skömmu. Ég braut nefnilega glerið á 6210 símanum mínum. Jæja, ég mæti á staðinn, tek númer og sé að það eru hátt í 20 númer á undan mér. Á meðan ég beið fylgdist ég svolítið með því sem fram fór við afgreiðsluborðið. Í einu tilviki reyndist vera vitlaus sími, sá rétti hafði “óvart” farið til einhvers annars. Væntanlegur “á morgun”. Í öðru tilviki var um að ræða unga stúlku sem hafði greinilega komið þarna oft við. Hennar sími var búinn að...